Ákvörðun um að hætta að nota AstraZeneca-bóluefni sögð „torskilin“ Kjartan Kjartansson skrifar 16. mars 2021 12:09 Ekkert hefur komið fram sem sýnir fram á orsakasamband á milli blóðtappa og bóluefnis AstraZeneca. Evrópusambandið og lyfjafyrirtækið hafa átt í deilum um afhendingar á efninu en nokkur Evrópuríki hafa nú stöðvað notkun á efninu tímabundið. Vísir/EPA Ákvörðun Evrópuríkja um að stöðva tímabundið notkun á bóluefni AstraZeneca var tekin þrátt fyrir að alþjóðlegar stofnanir hafi engar sannanir séð fyrir tengslum þess við blóðtappa í fólki. Sérfræðingur segir ákvörðunina torskilda og að hún hafi afleiðingar.
Ísland er í hópi nokkurra Evrópuríkja sem fylgdi í fótspor Noregs og stöðvaði tímabundið notkun á bóluefni AstraZeneca eftir að tilkynnt var um nokkur tilfelli blóðtappa hjá fólki sem hafði verið gefið efnið. Það gerðu ríkin þrátt fyrir að Alþjóðaheilbrigðisstofunin (WHO) og Lyfjastofnun Evrópu segðu engar vísbendingar fyrir orsakasamhengi. Tíðni blóðtappa hjá þeim sem hafa fengið bóluefnið í Evrópu er þannig lægri en búast mætti við almennt. Innan við fjörutíu manns hafa fengið blóðtappa af um sautján milljónum manna sem hafa fengið bóluefnið í ríkjum Evrópusambandsins og Bretlandi. Sérfræðingar WHO og Lyfjastofnunar Evrópu ætla að funda hverjir í sínu lagi um notkun bóluefnisins í dag. Breska ríkisútvarpið BBC segir að búist sé við því að evrópska stofnunin gefi út leiðbeiningar um notkun efnisins á fimmtudag. Stofnunin hefur sagt að ávinningur bóluefnisins vegi þyngra en áhættan af mögulegum aukaverkunum. Þýskaland, Frakkland, Ítalía og Spánn er á meðal ríkja sem hafa ákveðið að hætta notkun bóluefnisins tímabundið af „varúðarástæðum“. Önnur Evrópulönd, þar á meðal Belgía, Pólland, Tékkland og Úkraína ætla að halda notkun þess áfram. Þá heldur COVAX-áætlun Sameinuðu þjóðanna um að dreifa bóluefni AstraZeneca til fátækra ríkja áfram þrátt fyrir aðgerðir evrópskra ríkja. „Óskiljanleg“ ákvörðun Bólusetningar gegn kórónuveirunni hafa gengið afar hægt í Evrópu og eru ákvarðanir einstakra ríkja um að hætta notkun eins bóluefnanna ekki líklegar til þess að hraða ferlinu. Töfin gæti þýtt að þúsundir manna hljóti alvarleg og jafnvel langvarandi einkenni af völdum Covid-19 og að margir muni látast til viðbótar. „Fólk er að deyja um alla Evrópu. Smitum fjölgar í mörgum Evrópuríkjum. Bólusetningaráætlunin gengur á afturfótunum og fólk er þegar mjög hikandi gagnvart bóluefnum. Þau taka ekki tillit til gallanna við stöðvunina. Þegar búið er að stöðva gæti orðið ómögulegt að byggja aftur upp traust almennings,“ segir Anthony Cox, sérfræðingur í lyfjaöryggi við Háskólann í Birmingham, við BBC. Michael Head, lýðheilsusérfræðingur við Háskólann í Southampton á Englandi, segir ákvörðun ríkjanna torskiljanlega enda liggi ekki nægar upplýsingar fyrir til að réttlæta það að stöðva notkun bóluefnisins. „Að stöðva dreifingu bóluefnis í faraldri hefur afleiðingar. Það leiðir til tafa í vernd fyrir fólk og möguleikans á aukinna efasemda í garð bólusetninga vegna fólks sem hefur séð fyrirsagnir og fengið skiljanlegar áhyggjur,“ segir Head við AP-fréttastofuna. Þeir sem að ákvörðunum standa vísa til varúðar. Karina Butler, formaður bólusetninganefndar Írlands sem hefur einnig stöðvað notkun bóluefnisins, sagði ákvörðunina auka traust fólks á bólusetningaráætlunum. „Það sem við viljum gera er að útvega öruggar áætlanir. Við grípum til allra aðgerða til að tryggja að það sé það sem við gerum,“ sagði hún í viðtali við írska ríkisútvarpið RTE. Í sama streng tók Jens Spahn, heilbrigðisráðherra Þýskalands. „Það mikilvægasta fyrir traust er gegnsæi,“ sagði hann eftir að þýsk stjórnvöld ákváðu að hætta að gefa bæði fyrsta og annan skammt bóluefnis AstraZeneca á dögunum. Things are getting complicated with the Astra Zeneca vaccine in Europe. Despite the WHO saying it s fine to use, Germany, France and others have suspended its use. We ve looked at why and why some scientists are baffled . Produced @michaelcoxJ https://t.co/X1aeUdDabo pic.twitter.com/NsugaLYN3R— Ros Atkins (@BBCRosAtkins) March 15, 2021 Blóðtappar og blæðingar í Svíþjóð Svíþjóð bættist í hóp ríkjanna sem hættu að nota bóluefni AstraZeneca tímabundið í dag. Anders Tegnell, sóttvarnalæknir þar, segir að nokkur tilfelli um annars konar einkenni blóðtappa eftir bólusetningu hafi verið tilkynnt þar frá því á föstudag. „Það er annar og aðeins alvarlegri kvilli í blóðrásinni sem getur valdið bæði töppum og blæðingum,“ segir Tegnell við sænska ríkisútvarpið SVT. Einkennin hafi greinst í yngra fólki en blóðtapparnir sem tilkynnt hefur verið um annars staðar. Stöðvunin gildi til fimmtudags þegar ákvörðun Lyfjastofnun Evrópu um framhaldið liggur fyrir. Í Svíþjóð líkt og annars staðar er ákvörðunin sögð tekin í varúðarskyni. „Merkið er svo alvarlegt að við verðum að taka hlé í dag,“ sagði Tegnell um ákvörðunina.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Lyf Bólusetningar Tengdar fréttir Svíar stöðva einnig notkun á bóluefni AstraZeneca Heilbrigðisyfirvöld í Svíþjóð hafa ákveðið að stöðva notkun á bóluefni AstraZeneca þar til að Lyfjastofnun Evrópu hefur lokið rannsókn sinni á mögulegum aukaverkunum. Fjölmörg ríki Evrópu hafa nú þegar stöðvað notkunina, þar á meðal Ísland, eftir að fréttir bárust af því að að fólk hafi verið að fá blóðtappa í kjölfar sprautunnar. 16. mars 2021 08:23 Kynna hugsanleg næstu skref á fimmtudag Sérfræðinganefnd Lyfjastofnunar Evrópu (EMA) mun á fimmtudag ræða niðurstöður athugunar á mögulegum aukaverkunum bóluefnis AstraZeneca við Covid-19 og ræða hugsanleg næstu skref. 15. mars 2021 19:52 WHO: Ekki ástæða til að hætta að nota bóluefni AstraZeneca Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) telur ekki ástæðu fyrir lönd að hætta að nota bóluefni AstraZeneca gegn kórónuveirunni. Ekkert bendi til þess að bóluefnið geti valdið blóðtappa. Ísland er á meðal þeirra ríkja sem hafa stöðvað bólusetningar með efninu tímabundið í öryggisskyni. 12. mars 2021 16:48 Mest lesið Fleiri bitnir af hundunum Innlent Flugmaður hjá Icelandair opnar bókhaldið Innlent „Þetta er mikið áfall fyrir okkur fjölskylduna“ Innlent Segir að honum hafi gengið illa að sofna vegna hræðslu Innlent Tvö á slysadeild eftir árás lausra hunda Innlent Snarpur skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Innlent Vaknaði við hávaða og raddir úr næsta herbergi Innlent Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Innlent Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Innlent Enn ekkert spurst til Hákonar Innlent Fleiri fréttir „Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“ Steinsofandi þegar drunurnar riðu yfir: „Er þetta kjarnorkusprengja?“ Sundrung í Bretlandi vegna viðbragða lögreglu við drápi á ungmenni Fjarlægja mælitæki sem fylgist með AMOC nærri Íslandi Frítt til tannlæknis, skattalækkanir og gamall stórhátíðardagur endurvakinn Nýr El niño gæti orðið sá sterkasti sem sögur fara af Ætla að senda fleiri hælisleitendur á brott Skaðabótasjóður Trumps í hættu Ellefu látnir í umfangsmiklum árásum Rússa Sex úr sömu fjölskyldu skotnir til bana Áframhaldandi átök í Líbanon þrátt fyrir samkomulag Flugeldaverksmiðja sprakk í loft upp Miðvinstristjórn mynduð í Danmörku Hafnar ásökunum um nýtt hernaðarbrölt Japana Styttir ferðina vegna veikinda krónprinsessunnar Mótmæltu flutningi á ebólusmituðum Bandaríkjamönnum til Kenía Umdeildum vinstrimönnum meinuð koman til Bretlands Evrópskir og bandarískir öfgamenn lögðu saman á ráðin um fjöldabrottvísanir Frakkar tóku skuggaskip á Atlantshafi Deila í dómsal um hvort réttarhöldin verði opin Íranar gera árásir á Kúveit og Ísraelar sækja dýpra inn í Líbanon Veita sextán milljarða evra til Ungverjalands Hundruð handtekin vegna átaka í kjölfar sigurs PSG SAS fellir niður allt flug til Grænlands Norskur maður grunaður í máli Anne Elisabeth Hagen Margrét Þórhildur útskrifuð af sjúkrahúsi Krabbameinssjúkir gætu sloppið við lyfjameðferð Fjórir menn komnir út úr hellinum í Laos Flugumferð stöðvuð í München vegna mögulegs drónaflugs Buckingham-höll hafi fengið tölvupósta um misferli Andrews fyrir sex árum Sjá meira
Svíar stöðva einnig notkun á bóluefni AstraZeneca Heilbrigðisyfirvöld í Svíþjóð hafa ákveðið að stöðva notkun á bóluefni AstraZeneca þar til að Lyfjastofnun Evrópu hefur lokið rannsókn sinni á mögulegum aukaverkunum. Fjölmörg ríki Evrópu hafa nú þegar stöðvað notkunina, þar á meðal Ísland, eftir að fréttir bárust af því að að fólk hafi verið að fá blóðtappa í kjölfar sprautunnar. 16. mars 2021 08:23
Kynna hugsanleg næstu skref á fimmtudag Sérfræðinganefnd Lyfjastofnunar Evrópu (EMA) mun á fimmtudag ræða niðurstöður athugunar á mögulegum aukaverkunum bóluefnis AstraZeneca við Covid-19 og ræða hugsanleg næstu skref. 15. mars 2021 19:52
WHO: Ekki ástæða til að hætta að nota bóluefni AstraZeneca Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) telur ekki ástæðu fyrir lönd að hætta að nota bóluefni AstraZeneca gegn kórónuveirunni. Ekkert bendi til þess að bóluefnið geti valdið blóðtappa. Ísland er á meðal þeirra ríkja sem hafa stöðvað bólusetningar með efninu tímabundið í öryggisskyni. 12. mars 2021 16:48