Stefán Þorleifsson er látinn Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 15. mars 2021 10:57 Stefán Þorleifsson var mjög áhugasamur kylfingur og enn að eftir að hann varð hundrað ára. Aðsend Stefán Þorleifsson fyrrverandi íþróttakennari og fyrrverandi framkvæmdastjóri Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað, lést þann 14.mars á 105. aldursári. Stefán var elsti karlmaður landsins.
Stefán fæddist í Naustahvammi á Norðfirði 18. ágúst 1916. Hann var 4. í röð fjórtán barna Maríu Aradóttur og Þorleifs Ásmundssonar. Stefán kvæntist Guðrúnu Sigurjónsdóttur árið 1945 (f.1925 d.2013) og eignuðust þau 4 börn. Stefán lauk íþróttakennaraprófi frá Laugavatni árið 1940 og hóf strax að námi loknu að þjálfa og kenna íþróttir í heimabyggð. Fálkaorðuhafi Stefán var drifkraftur í fjölmörgum framfaramálum í Neskaupstað m.a. byggingu sundlaugarinnar sem hann síðan veitti forstöðu til margra ára. Á 100 ára afmæli Stefáns var sundlaugin nefnd Stefánslaug honum til heiðurs. Hann var varaformaður byggingarnefndar Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað og síðan forstöðumaður þess í 30 ár. Stefán hlaut í gegnum tíðina fjölda viðurkenninga fyrir störf sín að íþrótta- og félagsmálum og var m.a. sæmdur fálkaorðunni árið 1983. Leti það hættulegasta sem til er Langlífi Stefáns og virkni í íþróttum varð að fréttaefni oftar en einu sinni. Hann sagði í viðtali við Mbl árið 2019 að hann þekkti marga sem hefðu drepið sig á reykingum, og sjálfur hefði hann aldrei reykt. „Síðan hef ég aðeins einu sinni orðið drukkinn. Það gerðist þegar ég var tvítugur og lofaði að gera það aldrei aftur. Ég hef staðið við það,“ sagði Stefán. Sömuleiðis skipti máli góður maki, góð börn og samfélagið sem maður býr í. „Það skiptir máli að búa í samfélagi þar sem enginn er skilinn út undan, gætt að því hvernig fólki líður og að það sé heilbrigt.“ Hann lagði líka mikla áherslu á að hreyfa sig alla tíð og hafði á orði að leti væri það hættulegasta sem til væri. Tvisvar holu í höggi Fjallað var um virkni Stefáns í golfinu í þáttunum Golfarinn á Stöð 2 fyrir tveimur árum. „Alltaf þegar það er gott veður fer ég út á golfvöll og spila hring. Þetta er ekki erfið íþrótt, þannig, ef maður nennir að labba. En ég er tiltölulega ólatur við að labba,“ sagði Stefán sem var einn af stofnendum Golfklúbbs Norðfjarðar. „Meðan konan mín var á lífi fórum við alltaf saman í golf. Það var yndislegt. Sonur okkar bjó á Mallorca og við fórum oft í heimsókn til hans og lékum golf.“ Hann mælti sérstaklega með golfinu fyrir fólk sem væri komið á efri ár. „Þetta er alveg sérlega góð íþrótt fyrir fólk á öllum aldri, ekki síst þeir þá sem eru farnir að eldast, til að halda sér við. Þetta er talsverð hreyfing. Gangan er alltaf einföld og góð íþrótt út af fyrir sig og þessar hreyfingar í golfinu eru ágætar. Ef maður ætlar að iðka golf þarf maður að halda líkamanum við í öðrum íþróttum,“ sagði Stefán. „Það er engin ástæða til að hætta að spila golf ef maður stendur uppréttur og getur gengið og hreyft sig,“ sagði Stefán sem fór að minnsta kosti tvisvar holu í höggi á ævi sinni. Bólusettur í upphafi árs Stefán var elsti karlmaður á Íslandi þegar hann lést. Hann var bólusettur fyrir kórónuveirunni í Neskaupstað um áramótin. Hann ræddi sprautuna við Vísi og sagði hana ekki hafa verið neitt mál. „Ég fann ekkert fyrir þessu. Sumir eru hræddir við að láta sprauta sig en þetta er bara smá tilfinning og búið. En sumir geta orðið veikir en ég varð ekkert var við neina breytingu,“ sagði Stefán. Hann var þá nýfluttur á hjúkrunardeild Heilbrigðisstofnunar Austurlands í Neskaupstað og undi þar hag sínum vel. Kórónuveirufaraldurinn var ekki fyrsti heimsfaraldurinn sem Stefán upplifði. Hann fæddist árið 1916 en Spænska veikin barst fyrst til landsins haustið 1918. Stefán minntist þess að veikin hafi borist austur á heimahagana. „Það var algjör faraldveiki. Ég man ekki hvað dóu margir Íslendingar úr spænsku veikinni en það voru mjög margir, geysilegt mannfall. Sérstaklega í Reykjavík. Það var eini þéttbýlisstaðurinn þá á Íslandi. Það urðu einhverjir veikir heima á Norðfirði líka en ég man ekki hvort það var þá sem ég var nokkuð lengi veikur.“
Andlát Fjarðabyggð Skóla - og menntamál Tengdar fréttir Spilar enn golf þrátt fyrir að vera 103 ára: „Engin ástæða til að hætta ef maður stendur uppréttur“ Stefán Þorleifsson, einn af stofnendum Golfklúbbs Norðfjarðar, spilar enn golf þrátt fyrir að vera orðinn 103 ára. 30. júlí 2019 14:00 „Bara smá tilfinning og búið“ Stefán Þorleifsson, 104 ára og elsti núlifandi karlmaður á Íslandi, var bólusettur fyrir kórónuveirunni í Neskaupstað fyrr í vikunni. Hann segir sprautuna ekki hafa verið neitt mál og hefur ekki fundið fyrir eftirköstum. 1. janúar 2021 20:31 Mest lesið Segir Kúbu brátt munu falla Erlent Alvöru inniveður um helgina Innlent Þurfi ekki að óttast bílnúmeralesara við Sorpu Innlent Vatnselgur undir brúnni í Ártúnsbrekku Innlent Listamönnum fækkar ört Innlent Alvarlegt umferðarslys við Munaðarnes Innlent Gefst upp og flytur eftir sjö ára mótmæli Innlent Kristinn hafði betur gegn Alexöndru og verður oddviti Pírata Innlent Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Erlent Truflanir víða vegna eldingaveðurs Innlent Fleiri fréttir Þurfi ekki að óttast bílnúmeralesara við Sorpu Listamönnum fækkar ört Alvöru inniveður um helgina Kristinn hafði betur gegn Alexöndru og verður oddviti Pírata Selfosskirkja 70 ára og kirkjukórinn 80 ára Kjartan og Marta til liðs við Miðflokkinn Útiloka að þjóðaratkvæðagreiðslan fái hraða afgreiðslu Rætt við stjórnarandstöðuna um atkvæðagreiðslu um ESB Truflanir víða vegna eldingaveðurs Hvalfjarðargöng lokuð Vatnselgur undir brúnni í Ártúnsbrekku Ríkisstjórnin feli aðgerðaleysi á bak við atkvæðagreiðsluna Enn frekari dráttur á máli Margrétar „Verið að vaða áfram með æðibunugangi“ Rafmagnslaust vegna eldingar Jakob Bjarnar, Kjartan og Sunna tilnefnd til blaðamannaverðlauna Bráðabirgðaráðstafnir í Reynisfjöru: Nýr útsýnispallur rís í vor Mál Margrétar flutt á ný vegna dráttar Bjarki lætur staðar numið í Dalabyggð Ísland sé í sterkari stöðu en áður fyrir aðildarviðræður Alvarlegt umferðarslys við Munaðarnes Bein útsending: Staða loftlagsrannsókna á Íslandi Þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram 29. ágúst Kynna þjóðaratkvæði um framhald viðræðna Bein útsending: Kynna tillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu Methiti í hafinu við Ísland vísbending um stærri breytingar Kynna tillöguna um þjóðaratkvæðagreiðsluna klukkan 11:30 „Brýn nauðsyn“ geti kallað á rof þagnarskyldu heilbrigðisstarfsfólks Bein útsending: Staða mæðra á vinnumarkaði Síminn búinn að glamra í fjóra áratugi Sjá meira
Spilar enn golf þrátt fyrir að vera 103 ára: „Engin ástæða til að hætta ef maður stendur uppréttur“ Stefán Þorleifsson, einn af stofnendum Golfklúbbs Norðfjarðar, spilar enn golf þrátt fyrir að vera orðinn 103 ára. 30. júlí 2019 14:00
„Bara smá tilfinning og búið“ Stefán Þorleifsson, 104 ára og elsti núlifandi karlmaður á Íslandi, var bólusettur fyrir kórónuveirunni í Neskaupstað fyrr í vikunni. Hann segir sprautuna ekki hafa verið neitt mál og hefur ekki fundið fyrir eftirköstum. 1. janúar 2021 20:31