Hinn goðsagnakenndi Murray Walker er látinn Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 15. mars 2021 07:00 Murray Walker. Mark Thompson Murray Walker lést á föstudagskvöld, Walker er einna þekktastur fyrir litríkar lýsingar á Formúlu 1 sem og öðrum akstursíþróttum. Walker var 97 ára þegar hann lést.
Walker var hermaður í seinni heimsstyrjöldinni, eftir að stríðinu lauk tók hann til við mótorhjólakappakstur og naut þar ágætis árangurs. Hann tók svo til við að lýsa brekkuklifurs keppnum árið 1948. Hann vann við auglýsingasölu ásamt lýsingum þangað til árið 1978, þegar hann var hóf að lýsa Formúlu 1 í fullu starfi. „Við erum afar sorgmædd yfir því að Murray Walker er fallinn frá. Ástríða hans og ást fyrir íþróttinni hefur veitt milljónum innlbástur um allan heim. Hann mun ávallt eiga sess í sögu okkar og hans verður sárt saknað,“ segir meðal annars í yfirlýsingu frá Formúlu 1. Eitt frægasta augnablik ferils Walker var þegar góður vinur hans Damon Hill varð heimsmeistari árið 1996. Murray-ism eru frægar setningar sem hann sagði í lýsingum á löngum ferli. Hér eru nokkrar þýddar yfir á íslensku: „Það er ekkert að þessum bíl að því frátöldu að það hefur kviknað í honum.“ „Jafnvel eftir fimm ár, þá verður hann fjórum árum yngri en Damon Hill.“ „Það eru sjö fyrrum sigurvegarar í Mónakó kappakstrinum sem hefja keppnina í dag, fjórir þeirra eru Michael Schumacher.“ „Og nú, afsakið mig á meðan ég gríp fram í fyrir mér.“ „Fremsti bíllinn er alveg einstakur, fyrir utan bílinn sem er beint fyrir aftan hann sem er nákvæmlega eins.“ „Átta mínútur yfir heila tímann hér í Belgíu og sennilega átta mínútur yfir heila tímann alls staðar í heiminum.“
Formúla Andlát Bretland Mest lesið Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Erlent „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Innlent „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Innlent Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Innlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ Innlent Inga sendir boltann á sveitarfélögin Innlent „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Innlent „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Erlent Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Innlent