„Ég ætlaði mér inn og það heppnaðist á þessari hvítu lygi,“ segir Ellen þegar hún talar um þetta skemmtilega fyrsta skipti sem hún fór á stóra tískusýningu erlendis.
Ég man ennþá hvernig mér leið og hvað mér fannst þessi heimur heillandi og eitthvað sem ég sá fyrir að mig langaði að vinna við í framtíðinni.

Sá draumur hefur heldur betur ræst þar sem Ellen er í dag ein af reyndustu stílistum landsins með áralangan starfsferil að baki hérlendis og erlendis en hún hefur lifað og hrærst í tískuheiminum síðan hún var unglingur. Tískuvikurnar sem haldnar eru tvisvar á ári hefur hún sótt nánast ár hvert síðan 2009 og hafa það iðulega verið hápunktar ársins í tískuheiminum og stór hluti af hennar vinnu.
Laus við hausverkinn að ákveða í hverju á að klæðast fyrir sýningar
Á tímum heimsfaraldurs hefur tískuiðnaðurinn, eins og annar iðnaður, þurft að aðlaga sig breyttu landslagi og hafa nú tískusýningar og tengdir viðburðir nánast allir færst yfir á rafrænt form.
Hvernig upplifun er að sækja sýningarnar nú á netinu?
„Þetta er auðvitað allt öðruvísi og miklu ópersónulegra. Það má kannski líkja þessu við að hlusta á ný lög á Spotify eða fara svo á tónleika og upplifa. Ég kann samt alveg vel við þetta, maður er til dæmis laus við þann algenga hausverk að ákveða í hverju maður á að fara og allt stressið sem fylgir því að koma sér frá einum stað til annars. En sýningarnar eru út um allan bæ og borg og yfirleitt mjög stuttur tími á milli sýninga. Núna ræður maður bara ferðinni sjálfur og gerir þetta algjörlega á sínum forsendum svo að það eru vissulega kostir við þetta líka.“

Ellen segist þó sakna þess að hitta og eyða tíma með vinum sínum í Kaupmannahöfn og fólki úr tískusenunni og segir hún umræðurnar og stemmninguna sem skapast í kringum þetta allt vera stóran part af upplifuninni.
„Tískuvikurnar eru alltaf nokkrir dagar í senn með þéttri dagskrá af skemmtilegum viðburðum og sýningum. Þó svo að maður sakni þess að sýna sig og sjá aðra þá finnst mér mjög fallegt og skemmtilegt að sjá hvað tískuvikur heimsins eins og Copenhagen Fashion Week eru að ná að aðlagast breyttum aðstæðum með glæsibrag.“
Tískuvikan í Kaupmannahöfn, sem var að klárast um helgina, er sú tískuvika sem flestir Íslendingar sækja til að kaupa inn vörur fyrir búðir sínar og eins til að skoða nýjar stefnur og strauma.
Ég er allavega búin að skemmta mér konunglega þessa dagana að fylgjast með öllum þessum frábæru viðburðum. Bara heima í stofu, á kaffihúsi eða bara uppi í rúmi á náttfötunum með rjúkandi kaffibolla í hendi.

„Þessir tímar og þetta Covid ástand hefur auðvitað verið hræðilegt en hefur á sama tíma kennt okkur svo afskaplega mikið sem við ættum flest að vera þakklát fyrir. Það er ákveðinn einfaldleiki og ró sem hefur einkennt þetta tímabil. Við erum neydd til þess að hægja verulega á okkur, skoða umhverfið okkar með meiri virðingu og meta litlu hlutina í lífinu af meiri dýpt. Þetta á ekki síður við um tískuheiminn eins og okkur persónulega.“
Hvað er það sem þér finnst standa upp úr núna á tískuvikunni í Kaupmannahöfn?
„Ég á alltaf mín uppáhalds merki sem ég er spennt fyrir ár hvert. Mark Kenly Domino Tan sem að mínu mati stóð uppi sem ákveðinn sigurvegari þessa tískuvikuna, ég mæli með að fólk sem þekkir ekki það merki athugi það.“

Ellen nefndi líka stærri merki eins og Malene Birger, Ganni og Stand Studio sem hún segir einnig hafa staðið fyrir sínu.
„Það eru nokkur nýrri merki sem ég hef verið að fylgjast með vaxa og dafna síðustu tvö ár eins og eitt danskt merki sem ég er mjög hrifin af þessa stundina og búin að fylgjast lauslega með frá því það var stofnað 2018 sem heitir REMAIN.“
Þægindi og stór snið áberandi á tískupöllunum
Áhrif heimsfaraldursins á tískuna hefur meðal annars verið sá að fólk sækist meira í þægindi og föt sem henta betur til inniveru eins og svokölluð heimaföt. Íþróttaföt hafa sjaldan eða aldrei verið vinsælli og hafa tískumerkin náð að glæða gamla góða jogginggallann ákveðnum glamúrljóma sem flestar konur taka fagnandi.

Hver eru helstu tískutrendin?
„Það er allskonar í gangi og auðvitað er allt í raun leyfilegt. En svona almennt að þá halda þægindi áfram að vera vinsæl og í fararbroddi. Stór og víð „herraleg“ snið fyrir konur eru ennþá áberandi eins og síðustu ár og mjög ofarlega hjá flestum merkjunum núna. Sem er í raun í takt við tíðarandann og ástandið. Fólk er mikið meira heima fyrir á þessum tímum og því ekki mikið fyrir að dressa sig upp, enda ekkert mikið hægt að fara þessa dagana. Persónulega er ég að elska stemninguna sem er í gangi í þessum trendum núna. Ég ætla allavega að tileinka mér þessi þægindi og öll þessi stóru, víðu snið aðeins lengur í mínu fatavali, svo að ég tek þessu öllu saman fagnandi.“

Fyrir þá sem hafa áhuga á að fylgjast með Ellen og lífi hennar sem stílista er hægt að nálgast Instagram prófíl hennar hér.
