Lífið

Leikarinn Christopher Plummer er látinn

Eiður Þór Árnason skrifar
Christopher Plummer vann Óskarinn árið 2012 fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Beginners.
Christopher Plummer vann Óskarinn árið 2012 fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Beginners. Getty/Jason Merritt

Kanadíski leikarinn Christopher Plummer er látinn, 91 árs að aldri. Plummer er hvað þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Captain Von Trapp í hinum víðfræga Söngvaseið og hlaut Óskarsverðlaun fyrir besta leik í aukahlutverki árið 2012 fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Beginners.

Plummer var einnig tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir hlutverk sitt í The Last Station árið 2010 og All the Money in the World árið 2018. Hann átti að baki langan og litríkan feril á hvíta tjaldinu sem og á leiksviðinu þar sem hann hlaut tvenn Tony-verðlaun. 

Plummer er ekki síður þekktur fyrir frammistöðu sína í kvikmyndunum The Insider, 12 Monkeys, Star Trek VI: The Undiscovered Country, The Man Who Would Be King frá árinu 1975 og Knives Out sem kom út árið 2019. 

Fram kemur í frétt breska ríkisútvarpsins, BBC að Plummer hafi kvatt þennan heim á heimili sínu í Connecticut með eiginkonu sína Elaine Taylor sér við hlið. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.