Boðað var til mótmælanna eftir handtöku stjórnarandstæðingsins Alexei Navalní í síðustu viku og hafa bandamenn hans boðað til frekari mótmæla næstu helgi. Hann sendi frá sér skilaboð í gær þar sem hann ítrekaði að hann ætlaði ekki að svipta sig lífi í fangelsi.
Yfirvöld í Rússlandi höfðu sagt mótmælin ólögleg og vöruðu fólk við því að það gæti átt von á handtöku og mögulega fangelsisvist fyrir að taka þátt í þeim.
Í Moskvu komu allt að fjörutíu þúsund mótmælendur saman í miðborginni, samkvæmt Reuters fréttaveitunni, og kom til átaka við lögreglu sem beittu kylfum gegn mótmælendum. Að endingu voru mótmælendur reknir frá Pushkintorgi og hópuðust mótmælendur þar nærri þar sem þau köstuðu snjóboltum í lögregluþjóna.
Eftir það fóru einhverjir mótmælendur að fangelsinu þar sem Navalní er í haldi og mótmæltu þar.
Samtökin OVD-Info, sem vakta pólitískar handtökur í Rússlandi segja að 3.068 hafi verið handteknir í Rússlandi í gær. Þar af hafi 1.167 verið handteknir í Moskvu og rúmlega 460 í St. Pétursborg, þar sem önnur fjölmenn mótmæli fóru fram.
Meðal þeirra sem voru handteknir var Júlía Navalní, eiginkona Alexei. Lögmaðurinn Lyubov Sobol, sem einnig er bandamaður Navalní, var einnig handtekinn af óeirðalögreglu í dag á meðan hún ræddi við fréttamenn. Hún var einnig handtekin í aðdraganda mótmælanna í vikunni.
.
— (@CurrentTimeTv) January 23, 2021
: https://t.co/7SR1VNjCr6 pic.twitter.com/OwMtvg4cF4
AP fréttaveitan segir að mótmælin leiði til þrýstings á ráðamenn í Rússlandi. Ljóst sé að Navalní hafi byggt upp stórt tengslanet og njóti töluverðs stuðnings, þrátt fyrir að ríkið hafi beitt sér gegn honum og ríkismiðlar Rússlands hunsi hann nánast alfarið.
Ráðmenn vestrænna ríkja hafa kallað eftir því að Navalní verði sleppt úr haldi.
Sendi skilaboð og þakkaði fyrir sig
Navalní sendi frá sér skilaboð í gær þar sem hann þakkaði stuðningsmönnum sínum fyrir stuðninginn og ítrekaði að hann ætlaði sér ekki að fremja sjálfsvíg, samkvæmt frétt Moscow Times.
„Til vonar og vara: Ég ætla ekki að hengja mig eða skera mig á púls eða háls með beittri skeið á næstunni,“ skrifaði Navalní í skilaboð sín sem birt voru á Instagram. Hann sagðist nota stiga af mikilli varkárni og að hann væri við góða heilsu.
Navalní, sem eitrað var fyrir með taugaeitrinu Novichok í sumar, situr í Matrosskya Tishina fangelsinu. Þar dó Sergei Magnitsky við grunsamlegar aðstæður árið 2009 eftir að hann hóf rannsókn á umfangsmiklu spillingarmáli sem tengdist rússneskum embættismönnum.
Hér að neðan má sjá nokkur myndbönd frá mótmælunum í gær.
,
— (@mediazzzona) January 23, 2021
: / pic.twitter.com/QRkpJygSfN
-1
— (@mediazzzona) January 23, 2021
: « » pic.twitter.com/YItXYOZpM0
. , 50 .
— (@mediazzzona) January 23, 2021
« » https://t.co/uu5jzUDqMT pic.twitter.com/FJMNttUZ4z
, https://t.co/50drP9qjlr
— (@mediazzzona) January 23, 2021
: @Fontanka_spb pic.twitter.com/DSPuJDcSDH