Veiðileyfasala komin á fullt Karl Lúðvíksson skrifar 15. janúar 2021 09:56 Veiðimenn eru á fullu þessa dagana að bóka veiðidaga fyrir komandi sumar. Mynd: Ríkarður Hjálmarsson Núna er sá tími genginn í garð að veiðimenn landsins eru á fullu að skoða framboð á veiðileyfum og bóka veiðidaga fyrir komandi veiðisumar.
Núna er sá tími genginn í garð að veiðimenn landsins eru á fullu að skoða framboð á veiðileyfum og bóka veiðidaga fyrir komandi veiðisumar. Það er nú oft þannig að flestir eiga einhverja daga fastbókaða á sínum uppáhaldssvæðum en svo er það viðbótin, það er að segja þau svæði sem er kannski verið að prófa í fyrsta skipti. Við erum svo heppin að hér á landi eru veiðisvæðin gríðarlega mörg og fjölbreytt og fáum endist ævin til að prófa þau öll. Eins fjölbreytt og veiðisvæðin eru finna veiðimenn og veiðikonur þær áskoranir í veiði sem þeim hentar og auðvitað er hluti af þessu dásamlega veiðimannalífi að prófa eitthvað nýtt. Veiðileyfasalar eru þessa dagana komnir á skrið með að bóka sína föstu kúnna og kynna lausa daga á vefsölum og þar má margt finna. Við stiklum á þessu næstu daga og vikur og byrjum á að sjá hvað er í boði. Vefurinn www.veida.is er fullur af spennandi veiðileyfum og má þar nefna svæði eins og Hlíðarvatn, Brennuna, Fossá, Fremri Laxá, Gufuá. Hallá, Hvítá, Langadalsá, Mýrarkvísl, Norðurá II, Norðurá I, Reykjadalsá, Sog Alviðra, Ytri Rangá, Brúará, Straumarnir, Brunná, Hólaá, Svartá í Skagafirði og Minnivallalæk bara svo nokkur séu nefnd. Þarna má finna lausa daga, verð, upplýsingar um aðbúnað og kaupa leyfin á vefnum sem gerir það að verkum að það er hægt að stökkva á leyfi með litlum fyrirvara.
Stangveiði Mest lesið Augljóslega mikil andstaða hjá veiðimönnum við sjókvíaeldi Veiði Norðurá og Hofsá komnar yfir 1.000 laxa Veiði Stutt í 3.000 laxa í Eystri Rangá Veiði Veiðin með Gunnari Bender - 7. þáttur Veiði Nokkuð jöfn veiði í Eystri Rangá Veiði Heldur minni gæsaveiði í haust Veiði 101 sm lax úr Ytri Rangá Veiði Laxinn kominn upp á efri svæðin í Kjós Veiði Vikulegar tölur úr laxveiðiánum Veiði Risalax úr Aðaldalnum og fleiri stórir hængar Veiði