Varðskipið Þór kallað út þegar fóðurprammi sökk í vonskuveðri Eiður Þór Árnason skrifar 9. janúar 2021 23:49 Vonskuveður er á svæðinu og voru aðstæður afar krefjandi. Landhelgisgæslan Áhöfnin á varðskipinu Þór var kölluð út á níunda tímanum í kvöld þegar mikill leki kom að stórum fóðurpramma sem þjónar fiskeldiskvíum í Reyðarfirði. Þegar skipið var komið á staðinn var pramminn orðinn fullur af sjó og marar hann nú í kafi, að sögn Landhelgisgæslunnar.
Talið er að olía sé um borð og hefur Umhverfisstofnun, Samgöngustofu og fleiri viðeigandi aðilum verið gert viðvart. Fram kemur í tilkynningu frá Gæslunni að von sé á þjónustuaðilum í fyrramálið til hefja undirbúning þess að koma prammanum aftur á flot. Verður varðskipið Þór jafnframt til taks á Reyðarfirði ef á þarf að halda. Varðskipið var statt í Reyðarfirði þegar stjórnstöð Landhelgisgæslunnar bárust upplýsingar frá starfsmönnum fiskeldisfyrirtækisins um að pramminn væri að sökkva. Að sögn Gæslunnar var þegar í stað haft samband við áhöfnina á Þór sem var kölluð út til aðstoðar. Vonskuveður er á svæðinu og aðstæður sagðar afar krefjandi. Varðskipsmennirnir sjósettu léttbát Þórs og höfðu öflugar sjódælur meðferðis. Þegar áhöfnin á Þór kom á staðinn var ekkert hægt að gera þar sem pramminn var orðinn fullur af sjó líkt og áður sagði.
Fiskeldi Landhelgisgæslan Fjarðabyggð Mest lesið Lést í sprengingunni Innlent Robert Mueller er látinn Erlent Dapurlegt að fylgjast með hægriflokkum sem sameinast á jaðrinum Innlent Lögregla metur ógn af erlendum áhrifum á ESB-atkvæðagreiðslu Innlent Boða lokanir á hringveginum vegna veðurs Innlent Guðrún um Þorgerði: „Yfirlæti hefur ekki reynst henni góður ráðgjafi“ Innlent Skekkja hækki iðgjöld og kosti samfélagið milljarða Innlent Fríhöfnin gjörsamlega galtóm Innlent Íhugar að draga úr hernaði í Íran Erlent Viðvaranir að falla úr gildi en meira óveður í nánd Veður Fleiri fréttir Framboðslisti Vinstrisins í Reykjavík kynntur Boða lokanir á hringveginum vegna veðurs Einn handtekinn til viðbótar í tengslum við hópárásina Atvinnurekendur farnir að nota gervigreind til að sía umsóknarflóðið Lögregla metur ógn af erlendum áhrifum á ESB-atkvæðagreiðslu Guðrún um Þorgerði: „Yfirlæti hefur ekki reynst henni góður ráðgjafi“ Veittu ferðamönnum í vanda aðstoð við Héðinsfjarðargöng Rannsókn á banaslysinu í Fóðurblöndunni gæti tekið vikur og jafnvel mánuði Dapurlegt að fylgjast með hægriflokkum sem sameinast á jaðrinum Slysið í Fóðurblöndunni, möguleg afskipti af þjóðaratkvæðagreiðslu og enn meira óveður Lokað fyrir umferð um Öxnadalsheiði Skekkja hækki iðgjöld og kosti samfélagið milljarða Sleppt úr haldi eftir hópárásina á Höfðatorgi Fríhöfnin gjörsamlega galtóm „Auðvitað mikið áfall“ Sprengingin hjá Fóðurblöndunni og áhyggjur af stríðinu í Íran Fimm bíla árekstur á Sæbraut Gert að rannsaka tvö mál betur en gefa ekkert upp Vilja að lögreglan finni þann sem skrifaði færsluna Lést í sprengingunni Nú þarf ekki leyfi til að reka heilsugæslur, húðflúrstofur og fleira Airbnb-lög samþykkt: Íbúðir eigi að nýtast sem heimili Hafi orðið ryksprenging í tómum tanki í Fóðurblöndunni Ragna verður forstjóri Fangelsismálastofnunar „Heyrðust öskur þarna uppi og það er ekkert þægilegt“ Innviðir og íbúðir eiga að rísa samtímis í Hallahverfi Goðamót í uppnámi og útlit fyrir sama veður fram á nótt Öllu flugi dagsins aflýst Öflug sprenging í Korngörðum og vonskuveður víða Misræmi talið í framburði konu sem sakaði Þorstein um áreitni Sjá meira