Leita að olíufursta til að fjármagna ferðalag um landið á jógabíl Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 5. maí 2020 20:00 Jógakennararnir Íris Ösp Heiðrúnardóttir og Andrea Rún Carlsdóttir leggja af stað í hringferð á föstudag. Þær kenna jóga frítt á leiðinni en taka við frjálsum framlögum og grínast með að þær leiti að olíufursta. Mynd úr einkasafni
Jógakennararnir Íris Ösp Heiðrúnardóttir og Andrea Rún Carlsdóttir ætla að ferðast um landið í sumar og kenna jóga á leiðinni. Verkefnið heitir Jógabíllinn og eru vinkonurnar sjálfar skaparar, bílstjórar og jógaleiðbeinendur. „Jógabíllinn er Happy Campers húsbíll sem mun keyra um landið og leiða landsmenn í jóga gegn frjálsum framlögum, í raun jóga stúdíó á hjólum.“ Íris og Andrea segja að á leiðinni muni þær stoppa á ferðamannastöðum á víð og dreif um landið, smakka góða matinn sem landsmenn hafa upp á að bjóða, klífa falleg bæjarfjöll og taka sundsprett í fjörum og heitu laugum landsins. Þær segja að það þurfi alls ekki að hafa bakgrunn í jóga til þess að geta tekið þátt í tímunum, allir ættu að geta tekið þátt. „Á meðan önnur kemur til með að leiða tímann. Hin mun svo ganga á milli og aðstoða fólk til þess að allir fái sem mest út úr jógatímanum, þannig að ef þú ert að stíga þín fyrstu skref í jóga muntu læra helling á því að koma og jógast með okkur. Allir velkomnir,“ segir Íris. „Jóga er fyrir alla, hvernig sem þú kýst að taka þátt þá viljum við sjá þig, frænda þinn og ömmu þína.“ Límdar saman Íris hafði lengi verið með þessa hugmynd í maganum en þegar þær hittust urðu töfrar til og á innan við viku varð Jógabíllinn að veruleika. „Við erum báðar mjög framtaks- og vinnusamar og þess vegna byrjaði boltinn að rúlla frekar hratt og stækkaði verkefnið í takt við það. Það má segja að Jógabíllinn hafi reykspólað af stað.“ Íris og Andrea kynntust á Instagram og hittust svo í fyrsta skipti í eigin persónu þegar Íris fór í nudd til Andreu fyrir jólin. „Við höfum rosalega lík áhugasvið og þess vegna lágu leiðir okkar ítrekað saman. Rétt fyrir páska hittumst við síðan reglulega á Klambratúni, með góðu millibili að sjálfsögðu, til þess að iðka jóga með nokkrum fleiri frábærum konum. Þá byrjaði sambandið að styrkjast og byrjuðum við að ganga saman á fjöll og bera saman bækur okkar. Við höfum nánast verið límdar saman síðan, eins og sálusystur og getum við ekki beðið eftir að æra hvor aðra með æsingnum í okkur í Jógabílnum í maí.“ Ferðast frjálsar um Ísland Þær gefa sér þrjár vikur til að fara fyrsta hringinn í kringum landið en vona að verkefnið haldi áfram í sumar. „Fyrsti jógatíminn verður í Mosfellsbæ á föstudaginn 8. maí næstkomandi klukkan 17:00 og svo ætlum við að loka hringnum með pompi og prakt í Hljómskálagarðinum föstudaginn 29. maí.“ Áhugasamir geta fylgst með á Facebook og Instagram síðum verkefnisins til þess að sjá staðsetningu jógabílsins. „Markmiðið er að deila jógaboðskapnum, skoða landið okkar fagra, borða góðan mat, hlæja af góðum bröndurum, baða okkur í köldum sjónum og dreifa ást, hlátri, gleði og glimmeri sem víðast.“ Það kostar ekkert að taka þátt en þær taka við frjálsum framlögum. „Happy Campers er aðal styrktaraðili verkefnisins og komum við til með að keyra Jógabílinn um landið á Happy Campers húsbíl í sumar. Við erum enn að leita af „olíufursta“ til að aðstoða okkur með þann part ferðalagsins og erum að vinna að samstarfi við fleiri fyrirtæki sem hafa áhuga á að taka þátt. Við viljum taka fram að við erum að leggja í þetta ferðalag út frá góðvild og ánægju okkar á að fá að ferðast frjálsar um og leiða jóga og tökum þess vegna öllum þeim sem hafa áhuga á að taka þátt í verkefninu með okkur á einn eða annan hátt fagnandi.“ Íris og Andrea kynntust á Instagram og hafa verið óaðskiljanlegar síðan.Mynd úr einkasafni Fjallageitur sem elska náttúrulaugar Hægt er að senda þeim skilaboð á netfangið jogabillinn@gmail.com eða í gegnum samfélagsmiðla Jógabílsins. Planið þeirra er að skoða fjöll og firnindi, fossa og fjörur næstu vikurnar. „Okkur langar rosa mikið að komast í sauðburð og kynnast heimafólk alls staðar um landið, kynnast ömmum og bæjarstjórum og drekka með þeim kaffi.. Dansa, syngja, anda, leika og hafa gaman fyrst og fremst. Við ætlum að vera duglegar að nýta tímann og þetta tækifæri sem við höfum fengið í að skoða okkur vel um. Við höfum hvorugar komið á Austfirðina í langan tíma svo við erum rosalega spenntar fyrir því svæði. Við erum búnar að manifesta það að Prins Póló heyri bænir okkar og bjóði okkur í kaffi og Bulsur. Við erum líka rosalega spenntar að skoða Stokksnes og Vestrahorn. Við erum dálitlar fjallageitur svo við hlökkum mikið til að ganga fjöll og firnindi og leyfa okkur að týnast dálítið í tíma og rúmi. Við hlökkum líka til að komast í kaffi og ömmuknús á Ísafirði og Súðavík og að baða okkur í öllum þeim heitu laugum sem á vegi okkar verða. Við vonum að Snæfellsnesið bjóði okkur velkomnar með öllum sínum töfrum. Annars hlökkum við mikið til að fá að skoða landið og leyfa Íslandi að koma okkur á óvart.“ Sjá einnig: Vont veður aðeins hugarástand Íris segir að hún hafi alltaf verið mjög dugleg við að ferðast um landið. „Ég er í raun alin upp við að fara í allskonar ferðalög um landið með ömmu og afa og í styttri ferðir í tjaldi með mömmu þegar ég var yngri. Á eldri árum hef ég reynt eins og ég get að ferðast innanlands en á seinni tíð hafa ferðir til útlanda kallað meira á mig. Núna er ég spennt fyrir því að skoða „túristalaust“ Ísland og ferðast um landið mitt eins og ég hafi aldrei komið hingað áður.“ Þær stefna að því að kenna jóga utandyra en munu færa sig inn ef veðrið er þeim ekki hagstætt. „Þá treystum við á góðvild bæjarbúa að leyfa okkur að nota sólskála eða íþróttahús fyrir viðburðinn okkar. Í versta falli seinkum við dagskránni örlítið. Annars er vont veður bara hugarástand.“ Fyrsti hringurinn er nú þegar skipulagður og leggja þær af stað á föstudaginn. „Við lítum á fyrsta hringinn sem eins konar generalprufu en eftir það sjáum við fyrir okkur styttri ferðir á ákveðna landshluta eða jafnvel annan hring. Við erum mjög opnar fyrir hverju sem gæti komið í kjölfar Jógabílsins og hvetjum alla sem hafa áhuga á að fá okkur í heimsókn að hafa samband. Við vonumst til þess að sjá sem flesta í tímunum okkar um landið, krafturinn leynist í fjöldanum og við munum að sjálfsögðu virða tveggja metra regluna.“
Ferðamennska á Íslandi Ferðalög Mest lesið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Tíska og hönnun Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Lífið Beint flug til Portó Lífið samstarf HAM boða endalok alls Tónlist Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Afþakkar Grammy-tilnefningu Tónlist Þórdís segir skilið við Flekaskil Lífið Fleiri fréttir Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Sonurinn fékk nafnið Skógur Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Sjá meira