Sinubruni á Reyðarfirði Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 20. apríl 2020 16:31 Frá vettvangi á Reyðarfirði í dag. Ágúst Ívar
Slökkvilið Fjarðabyggðar var kallað út laust fyrir klukkan hálffjögur í dag vegna sinubruna sem hafði kviknað skammt fyrir ofan íbúðabyggð á Reyðarfirði. Þorbergur Níels Hauksson, aðstoðarslökkviliðsstjóri, segir að vel hafi gengið að slökkva eldinn og var búið að ráða að niðurlögum hans þegar Vísir náði tali af Þorbergi fyrir um korteri síðan. Hann segir að eldurinn hafi logað á dálitlu svæði en þeir tólf slökkviliðsmenn sem fóru í útkallið hafi fljótt náð góðum tökum á eldinum og náð að berja hann niður og bleyta í. Þorbergur segir íbúðabyggðina fyrir neðan ekki hafa verið í hættu. Hins vegar sé mikill skógur fyrir ofan svæðið þar sem bruninn varð og segir hann að slökkviliðið hafi ekki viljað missa eldinn í skóginn. Það hafi tekist að koma í veg fyrir að hann breiddi úr sér þangað. Talið er að bruninn hafi orðið vegna þess að krakkar voru að fikta með eld á svæðinu en Þorbergur segir að síðan hafi verið mikil hjálp í því að krakkar hafi komið með fötur fullar af vatni til að aðstoða slökkviliðið við að slökkva eldinn.
Fjarðabyggð Slökkvilið Mest lesið Á bak við auglýsingarnar um Dag en skráður í Samfylkinguna Innlent Frægasti köttur landsins týndur Innlent „Árleg æfing í vonbrigðum“ Innlent Fyrstu lotu læknaverkfalls aflýst Innlent Ræktar banana í Hafnarfirði með góðum árangri Innlent Enginn drukkinn jólasveinn í jólaþorpi Hafnarfjarðar Innlent Engar ruslatunnur í Grindavík Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum Erlent Í símanum undir stýri og bíllinn mikið skemmdur Innlent Fleiri fréttir „Árleg æfing í vonbrigðum“ Fyrstu lotu læknaverkfalls aflýst Á bak við auglýsingarnar um Dag en skráður í Samfylkinguna Ræktar banana í Hafnarfirði með góðum árangri Frægasti köttur landsins týndur Enginn drukkinn jólasveinn í jólaþorpi Hafnarfjarðar Engar ruslatunnur í Grindavík Kapphlaup við tímann í Karphúsinu og eggjaskortur í aðdraganda jóla Í símanum undir stýri og bíllinn mikið skemmdur Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Biskup fagnar hækkun sóknargjalda Sundhnúksgígaröðin að verða búin Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Breyting á eldgosinu og stór dagur í Karphúsinu Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Minni virkni í miðgígnum Vextir og kosningar í Sprengisandi Réttindalausir stútar á ferðinni Engar sýnilegar breytingar á hraunflæði eða krafti Ók á ljósastaur við Grensásveg Eldur kviknaði í bíl í Mosfellsbæ Læknar fara þokkalega bjartsýnir inn í morgundaginn Viðreisn stærst samkvæmt nýrri kosningaspá en mjótt á munum Sjálfstæðisflokkurinn hafi lagt til niðurskurð á hverju ári Hefur gefið Landgræðslunni 26 milljónir króna í formi fræja Mikilvægt að Bláa lónið geti opnað sem fyrst Hvetja íbúa Suðurnesja til að spara heita vatnið Varnaraðgerðir í Svartsengi og umdeild yfirhalning hjá Jaguar Sjá meira