Tuttugu leikmenn sem blómstruðu eftir að hafa yfirgefið enska boltann Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 20. apríl 2020 14:00 Luis Alberto náði ekki að vinna sér sæti í byrjunarliði Liverpool. Hann er í dag einn af bestu leikmönnum Lazio. vísir/getty
Það er langt frá því algilt að fótboltamenn slái í gegn í enska boltanum. The Guardian hefur tekið saman lista yfir leikmenn sem hafa blómstrað eftir að hafa yfirgefið England. Listinn telur 20 leikmenn, einn frá hverju liði í ensku úrvalsdeildinni. Þar má m.a. finna spænska miðjumanninn Luis Alberto. Hann spilaði aðeins tólf leiki fyrir Liverpool en hefur verið einn af lykilmönnum Lazio undanfarin ár. Alberto hefur lagt upp flest mörk allra í ítölsku úrvalsdeildinni í vetur. Sænski miðjumaðurinn Kristoffer Olsson er einnig á listanum sem fulltrúi Arsenal. Hann lék aðeins 36 mínútur með aðalliði Arsenal en er í dag lykilmaður í liði Krasnodar sem er í 2. sæti rússnesku úrvalsdeildarinnar. Olsson leikur með Jóni Guðna Fjólusyni hjá Krasnodar. Tveir markverðir eru á listanum; Pierluigi Gollini og Joel Robles. Gollini hefur slegið í gegn með Atalanta og lék sinn fyrsta landsleik fyrir Ítalíu síðasta haust. Hann kom til Atalanta frá Aston Villa þar sem honum var ekki treyst fyrir stöðu aðalmarkvarðar. Robles lék aðeins 65 leiki á fimm tímabilum með Everton en er núna aðalmarkvörður Real Betis. Norski framherjinn Alexander Sørloth er einnig á listanum. Hann skoraði aðeins eitt mark í 20 leikjum fyrir Crystal Palace en er í dag markahæsti leikmaður tyrknesku úrvalsdeildarinnar. Í vetur hefur hann skorað nítján mörk í 26 leikjum fyrir Trabzonspor sem er á toppnum í Tyrklandi. Grein the Guardian má lesa með því að smella hér.
Enski boltinn Mest lesið United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Íslenski boltinn Strákarnir réðu ekki við Finnana Körfubolti Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Íslenski boltinn Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Enski boltinn „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn Sinner missir af Opna bandaríska Sport „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ Íslenski boltinn Glódís skoraði í stórsigri Bayern Fótbolti Curtis Jones farinn til Inter Enski boltinn Fleiri fréttir United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Fernandes ekki á förum Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Sjáðu mörkin sem tryggðu Arsenal skjöldinn Eiður Smári í enska boltann á Sýn Sport Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Sjá meira