Lífið

Metfjöldi í umsóknum í Hönnunarsjóð í ár og kraumandi sköpunarkraftur

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Styrkþegar Hönnunarsjóðs í nóvember 2019 ásamt Birnu Bragadóttur, stjórnarformanni Hönnunarsjóðs.
Styrkþegar Hönnunarsjóðs í nóvember 2019 ásamt Birnu Bragadóttur, stjórnarformanni Hönnunarsjóðs. Hönnunarmiðstöð/ Víðir Björnsson

Umsóknarfrestur í Hönnunarsjóð rann út í síðustu viku og bárust alls 126 umsóknir. Heildarupphæð umsókna var um 237 milljónir en sjóðurinn mun veita 20 milljónir að þessu sinni. Úthlutun Hönnunarsjóðs fer fram þann 4. maí næstkomandi.

Ástandið í kjölfar Covid-19 faraldursins hefur augljós áhrif á fjölda umsókna en 30 prósent aukning var á milli ára. Faraldurinn hafði einnig áhrif á viðfangsefni umsækjanda en samkvæmt upplýsingum frá Hönnunarmiðstöð snúa mörg verkefnanna að nýsköpun í kjölfar faraldurs og breyttri heimsmynd. Meðal annars er lögð áhersla á rafrænar lausnir, sjálfbærni og matarsóun.

„Metfjöldi umsókna til Hönnunarsjóðs staðfestir mikilvægi hans, ekki síst á fordæmalausum tímum eins og þessum. Hlutverk Hönnunarsjóðs er að efla þekkingu og atvinnu- og verðmætasköpun á sviði hönnunar og arkitektúrs með fjárhagslegum stuðningi og ráðgjöf.Hönnunarsjóður veitir jafnframt styrki til kynningar- og markaðsstarf erlendis í því skyni að efla útflutning íslenskrar hönnunar. Sá mikli fjöldi þeirra umsókna sem sjóðnum hefur borist og gæði umsókna staðfestir kraumandi sköpunarkraft í samfélaginu sem gefur góða von um að framundan séu bjartari tímar,” segir Birna Bragadóttir stjórnarformaður Hönnunarsjóðs.

Hönnunarsjóður heyrir undir atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið og er tekjustofn hans árlegt framlag sem Alþingi ákveður á fjárlögum. Í ár er framlag til sjóðsins 50 milljónir króna samkvæmt upplýsingum frá Hönnunarmiðstöð. 


Tengdar fréttir

Partur af öllum skapandi einstaklingum að efast á hverjum degi

Bergþóra Guðna fagnar nú 20 ára starfsafmæli sem fatahönnuður. Bergþóra sækir innblástur sinn í íslenska arfleið, náttúru og menningu og verða flíkur hennar frá 66Norður og Farmers Market til sýnis á Hönnunarmars í sumar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.