Rok og rigning en gæti skriðið í rúmlega 10 stig fyrir austan Atli Ísleifsson skrifar 31. mars 2020 07:16 Blautt er það, spákortið fyrir hádegið í dag, eins og það leit út klukkan sjö í morgun. Veðurstofan
Útlit er fyrir suðvestan strekking eða allhvassan vind í dag, 10 til 18 metrar á sekúndu, með rigningu sem einkum verður bundin við vesturhelming landsins. Í hugleiðingum veðurfræðings segir að það verði milt í veðri og hiti yfirleitt á bilinu þrjú til átta stig. Þó gæti skriðið í rétt rúmlega tíu stig á Austfjörðum og Suðausturlandi. Í kvöld dregur svo úr úrkomu og kólnar. „Á morgun verður stífur vindur úr vestri, sums staðar hvassviðri. Með fylgja él, en austanlands hangir þurrt. Það heldur áfram að kólna og frost allt að 5 stig síðdegis. Undir kvöld snýst vindur til norðlægrar áttar og snjókomubakki kemur inn á norðanvert landið, en þá má búast við stöku éljum syðra. Út vikuna er síðan ekkert nema kuldi í kortunum - frost á öllu landinu. Í ofanálag verður vindur stundum hvass og áður en vikan er á enda eru líkur á að það hafi snjóað í öllum landshlutum.“ Yfirlit: Það er víða ansi hvasst um norðan- og austanvert landið sem veldur því að sumstaðar nær að skafa inn á veg og skapa krap eða hálkubletti þótt hlýtt sé í veðri og vegir að mestu leyti auðir. Upplýsingasíminn 1777 er opinn alla daga kl. 06:30-22:00. #færðin— Vegagerðin | Iceland Roads (@Vegagerdin) March 31, 2020 Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Vestan 13-20 m/s og él, en úrkomulítið austanlands. Kólnandi, frost 0 til 5 stig síðdegis. Norðlægari um kvöldið og snjókoma á norðurhelmingi landsins. Á fimmtudag: Minnkandi norðanátt. Léttskýjað sunnan- og vestanlands, en él um landið norðaustanvert. Frost 2 til 8 stig. Á föstudag: Norðlæg átt og kalt í veðri. Él N- og A-lands og snjókoma við S-ströndina síðdegis. Á laugardag: Austan og norðaustan hvassviðri eða stormur. Víða snjókoma og áfram kalt í veðri. Á sunnudag: Norðaustanátt og snjókoma eða él norðan- og austanlands. Úrkomulaust að mestu á Suður- og Vesturlandi, en dálítil snjókoma með suðurströndinni. Frost um allt land. Á mánudag: Austlæg átt og líkur á snjókomu eða éljum í flestum landshlutum.
Veður Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Fleiri fréttir Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Sjá meira