Vísbendingar um „gott og verndandi ónæmissvar“ við kórónuveirunni Kristín Ólafsdóttir skrifar 20. mars 2020 14:52 Alls hafa nú 409 kórónuveirusmit verið staðfest á Íslandi. Vísir/vilhelm
Merki eru um gott og verndandi ónæmissvar í kjölfar þess að einstaklingur nær sér eftir Covid-19-sjúkdóminn. Helsta óvissan nú snýr að því hversu lengi þetta ónæmi varir. Þetta kemur fram í svari Jóns Magnúsar Jóhannessonar, deildarlæknis á Landspítalanum, á Vísindavefnum við spurningu þess efnis hvort hægt sé að smitast oftar en einu sinni af kórónuveirunni, sem veldur Covid-19. Yfir 200 þúsund tilfelli af veirunni hafa verið greind á heimsvísu, þar af 409 á Íslandi samkvæmt nýjustu tölum. Þá nálgast dauðsföll af völdum veirunnar nú tíu þúsund alls í heiminum. Jón Magnús segir í svari sínu að mikilvæg spurning sem beri að svara þegar ný sýking komi upp sé hvort náist að mynda ónæmi gegn henni, þ.e. ef einstaklingur fær Covid-19-sjúkdóminn og jafnar sig á honum, getur hann smitast aftur af veirunni? Sjá einnig: Greindist með kórónuveiru í annað sinn Í þessu samhengi hefur til dæmis verið greint frá nokkrum tilfellum á heimsvísu þar sem einstaklingar með Covid-19 virðast jafna sig af veirunni; losna við einkenni og sýni úr þeim reynist neikvætt, en greinast síðan aftur með veiruna við sýnatöku. Ónæmisminni gegn einni gerð kórónuveiru verndar ekki gegn annarri gerð Jón Magnús byrjar á því að fara yfir að nýja kórónuveiran, hverrar faraldur geisar nú, sé einmitt kórónuveira. Almennt séð myndi líkaminn sterkt ónæmissvar gegn slíkum veirum. „Þegar ónæmissvar hefur myndast gegn veiru myndast gjarnan ónæmisminni, en með því er átt við að ónæmiskerfið þekkir veiruna við endursmit og kemur í veg fyrir þróun sýkingar.“ Ónæmisminni sem myndast vegna einnar gerðar kórónuveiru mun þó ekki verja okkur gegn sýkingu annarrar gerðar kórónuveiru. Þetta eigi til að mynda við um kórónuveirur sem kenndar hafa verið við SARS og MERS. Þá sé einnig misjafnt hversu lengi ónæmisminnið vari en í því samhengi sé þó vissulega gagnlegt að horfa til áðurnefndra kórónuveira SARS og MERS. „Fyrir báðar veirurnar virðast sértæk og verndandi mótefni myndast og haldast til staðar í allt að tvö ár. Eftir þann tíma virðist magn mótefnanna fara minnkandi. Hvort þetta þýði að endursýking getur orðið að þeim tíma liðnum er óvíst sem stendur. Hins vegar virðist frumubundið ónæmi vara lengur en í tvö ár. Þetta hefur mest verið rannsakað í tengslum við MERS-CoV.“ Engin ástæða sé til að ætla að öðruvísi ónæmi myndist gegn nýju kórónuveirunni. Niðurstöður nýlegrar rannsóknar hafi sýnt fram á gott mótefnasvar tveimur til þremur vikum eftir sýkingu, sem kom í veg fyrir endursýkingu. „Þetta, ásamt því sem við vitum nú þegar um kórónuveirur, bendir sterklega til þess að við myndum gott mótefnasvar eftir COVID-19 sem ætti að koma í veg fyrir endursýkingar,“ skrifar Jón Magnús. Meiri tími til að rannsaka veiruna „Hvað þá með fréttir um einstaklinga með „endursmit“ eða versnandi einkenni eftir útskrift? Hvað getur legið þar að baki?“ spyr Jón Magnús að lokum og telur upp hugsanlegar orsakir, sem önnur nýleg rannsókn fer yfir. Þau eru eftirfarandi: Vitað er að veiran getur fundist í öndunarfærum einstaklinga í meira en 30 daga eftir upphaf einkenna COVID-19. Það að veiran finnist í sýni er ekki ávísun á að virkur sjúkdómur sé til staðar. Þannig geta einstaklingar veikst af öðrum ástæðum eftir COVID-19 en áfram verið með veiruna til staðar við sýnatöku. Þótt prófin sem notuð eru til að greina veiruna í öndunarfærum séu almennt mjög góð geta þau verið neikvæð þrátt fyrir að veiran sé til staðar. Þetta kallast fölsk-neikvæð niðurstaða og á sérstaklega við þegar magn af veirunni er tiltölulega lítið, sem dæmigert er að sjá í batafasa. Þannig getur einhver verið að jafna sig eftir COVID-19, verið neikvæður í einu sýni en jákvæður í öðru. Þetta þarf ekki endilega að þýða að veiran sé aftur orðin vandamál.[6] Eins og staðan er núna skiljum við ekki að fullu náttúrulega þróun þessarar veirusýkingar. Vitað er að veiran getur farið í bæði efri og neðri öndunarfærin (lungun) og fer alvarleiki veikindanna meðal annars eftir þessari dreifingu. Einnig getur COVID-19 verið það sem nefnt er tvífasa veikindi, með vægum einkennum til að byrja með sem versna gjarnan viku síðar. Það er þannig hugsanlegt að tími til alvarlegri veikinda geti verið enn lengri og meðal annars lýst sér þannig að sjúklingur verði fyrst betri en versni síðan snögglega aftur. Einstaklingar með COVID-19 fá mismunandi meðferðir eftir löndum og spítölum. Margir hafa verið meðhöndlaðir með barksterum, ónæmisbælandi meðferð sem getur minnkað bólgu en einnig minnkað ónæmissvar við veirunni. Þetta gæti truflað mynstur veirunnar í sýnum og einnig leitt til þess að hugsanleg verri einkenni sýkingar geti komið fram eftir útskrift af spítala. „Eftir stendur að engin staðfest tilfelli endursýkingar af SARS-CoV-2 eru þekkt. Einnig eru merki um gott og verndandi ónæmissvar í kjölfar þess að einstaklingur nær sér eftir COVID-19. Helsta óvissan nú er hversu lengi það ónæmi varir – verður það í tvö ár með dvínandi magni eins og í SARS og MERS eða endist ónæmið ævilangt? Það er að minnsta kosti hughreystandi að meira að segja ef ónæmið varir aðeins í nokkur ár gefur þetta okkur tíma til að rannsaka veiruna betur, finna meðferðir og vonandi þróa bóluefni sem mun veita betri og langvinnari vörn án þess að einstaklingur þurfi að sýkjast af veirunni sjálfri,“ skrifar Jón Magnús. Svar Jóns Magnúsar á Vísindavefnum í heild.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Heilbrigðismál Tengdar fréttir Fjórir úr sömu fjölskyldunni dánir og þrír veikir Fjórir meðlimir sömu fjölskyldunnar í New Jersey í Bandaríkjunum eru dánir vegna Covid-19, sjúkdómsins sem nýja kórónuveiran veldur. 20. mars 2020 14:35 Biðla til fólks að biðja ekki um undanþágu frá sóttkví nema nauðsyn krefji Töluvert hafi borið á undanþágubeiðnum en erfitt sé að verða við þeim ef aðgerðin eigi að hafa tilætluð áhrif. 20. mars 2020 14:22 Bein útsending: Upplýsingafundur vegna kórónuveirunnar Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðaði til upplýsingafundar fyrir blaðamenn klukkan 14:00 í Skógarhlíð 14. Fundurinn verður í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 3. 20. mars 2020 13:16 Mest lesið Barn strauk af leikskóla í Hafnarfirði Innlent Fimmtán ára stúlka drap tvo fyrir Foxtrot-gengið Erlent Verslun opnar á varnarsvæðinu en viðveran stendur í stað Innlent Ætla ekki að reka legurými í Klíníkinni Innlent Rasískur reiðilestur Trump: Lýsti Sómölum sem „heimsku“ og þjófóttu fólki Erlent Kastaðist marga metra eftir að ekið var á hann Innlent Fékk dánaraðstoð í gær eftir harða baráttu við föður sinn Erlent Heuermann sagður ætla að játa Erlent Lægðin heldur áfram að angra landsmenn Veður Fólkaflokkurinn fram úr Javnaðarflokknum Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Árangur í krabbameinsmeðferð – hvað getum við bætt? Meint kynferðisbrotamál rannsakað í tvígang en fellt niður Röskva bar sigur úr býtum Hokin af reynslu og vill stórt egg fyrir strákinn Barn strauk af leikskóla í Hafnarfirði Norðurevrópskir bandamenn funda á Íslandi á næsta ári Verslun opnar á varnarsvæðinu en viðveran stendur í stað Ætla ekki að reka legurými í Klíníkinni Árnesingur og Rangæingur grafa fyrir Hvammsvirkjun „Sem betur fer er okkar maður ekki illa meiddur“ Kastaðist marga metra eftir að ekið var á hann Snör handtök skiptu sköpum á Höfðatorgi Sjö vilja stýra Sjúkrahúsinu á Akureyri Árekstur í Borgarfirði 2025: Hálka ein meginorsaka banaslyss Fækka stöðugildum hjá ríkinu um eitt prósent Bein útsending: Daði Már kynnir fjármálaáætlunina Forseti Slóveníu mætir á afmælisdegi Vigdísar Líf leiðir Sjálfstæðisflokk áfram á Akranesi Stúlkan er fundin Opna nýja möguleika í að binda kolefni með aðferð Carbfix Neita að afhenda dóma lögreglumanna Varð fyrir „áfalli“ að sjá uppsagnarbréf Málþing um konur sem lifa við langvinn veikindi Telja að bílastæðum fækki eftir að þau voru færð úr uppdráttum Þakklátur að flestir fylgdu tilmælunum Geta ekki siglt Herjólfi að höfninni vegna óveðursins Barnlaus leikskóli Menningarhúsið fer ekki í íbúakosningu Þakkar Google Translate fyrir að engin börn mættu í skólann Strætó hættir akstri í dag Sjá meira
Fjórir úr sömu fjölskyldunni dánir og þrír veikir Fjórir meðlimir sömu fjölskyldunnar í New Jersey í Bandaríkjunum eru dánir vegna Covid-19, sjúkdómsins sem nýja kórónuveiran veldur. 20. mars 2020 14:35
Biðla til fólks að biðja ekki um undanþágu frá sóttkví nema nauðsyn krefji Töluvert hafi borið á undanþágubeiðnum en erfitt sé að verða við þeim ef aðgerðin eigi að hafa tilætluð áhrif. 20. mars 2020 14:22
Bein útsending: Upplýsingafundur vegna kórónuveirunnar Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðaði til upplýsingafundar fyrir blaðamenn klukkan 14:00 í Skógarhlíð 14. Fundurinn verður í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 3. 20. mars 2020 13:16