Fimmtungur íbúa í Húnaþingi vestra í sóttkví Kjartan Kjartansson skrifar 18. mars 2020 21:04 Grunnskólinn á Hvammstanga þar sem starfsmaður greindist smitaður af kórónuveiru í gær. Já.is
Rúmlega 230 íbúar í Húnaþingi vestra eru nú í sóttkví eftir að fyrsta Covid-19-smitið greindist í sveitarfélaginu í gær. Um fimmtungur íbúa sveitarfélagsins er því í sóttkví og varar sveitarstjórinn við skertri starfsemi hjá stofnunum þess. Starfsmaður grunnskólans á Hvammstanga greindist smitaður af kórónuveirunni í gær og hefur skólahald verið fellt niður um óákveðinn tíma vegna þess. Á vefsíðu Húnaþings vestra kemur fram að 57 einstaklingar hafi farið í sóttkví vegna þess í gærkvöldi en þeim hafi fjölgað verulega í dag. Alls eru 130 heimili í sveitarfélaginu í sóttkví. Kaupfélag Vestur-Húnvetninga auglýsti að verslunin þyrfti að skerða þjónustu og stytta opnunartíma í dag. Á næstu dögum er búist við því að fleiri þurfi að skerða þjónustu í sveitarfélaginu. „Með því að fara að öllu eftir leiðbeiningum stjórnvalda og heilbrigðisyfirvalda ásamt því að sýna almenna skynsemi mun okkur takast að sigrast á þessari áskorun sem og öllum öðrum,“ segir í tilkynningunni sem Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir, sveitarstjóri, skrifar undir.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Húnaþing vestra Tengdar fréttir Grunnskólanum á Hvammstanga lokað vegna smits starfsmanns Skólahald í Grunnskóla Húnaþings vestra hefur verið fellt niður um óákveðinn tíma eftir að starfsmaður skólans greindist með kórónuveirusmit. 18. mars 2020 08:19 Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira
Grunnskólanum á Hvammstanga lokað vegna smits starfsmanns Skólahald í Grunnskóla Húnaþings vestra hefur verið fellt niður um óákveðinn tíma eftir að starfsmaður skólans greindist með kórónuveirusmit. 18. mars 2020 08:19