Hundrað þúsund lögreglumenn munu koma í veg fyrir samkomur Sylvía Hall skrifar 30. desember 2020 23:39 Lögreglumenn verða með sýnilega viðveru í Frakklandi á gamlárskvöld. EPA/IAN LANGSDON Yfirvöld í Frakklandi hafa ákveðið að setja hundrað þúsund lögreglumenn í viðbragðsstöðu á gamlárskvöld til þess að sporna gegn samkomum og fögnuðum. Útgöngubann er í gildi frá klukkan 20 og mun lögregla vera með sýnilega viðveru á almenningssvæðum.
Þetta er gert eftir fyrirskipun innanríkisráðherrans Gérald Dramain, sem hefur einnig kallað eftir því að fleiri almenningssamgöngum verði lokað en nú þegar er gert ráð fyrir, en aðeins helmingur lestarleiða verður í notkun annað kvöld. Lögreglumenn hafa fengið þá skipun að þeir eigi að koma í veg fyrir samkvæmi um leið og þau eru tilkynnt, hafa uppi á skipuleggjendum og sekta þá. Smitum hefur farið fjölgandi í Frakklandi en frá því að faraldurinn hófst hefur veiran verið hvað útbreiddust í Frakklandi. Alls hafa 2,6 milljónir Frakka greinst með kórónuveirusmit og 64 þúsund látist. Aðeins hafa fleiri greinst í fjórum öðrum löndum að því er fram kemur á vef breska ríkisútvarpsins. Þá hafa yfirvöld boðað að það sé til skoðunar að færa útgöngubann til klukkan 18 á þeim svæðum þar sem smitum fer hvað mest fjölgandi. Þessum aðgerðum er einnig ætlað að koma í veg fyrir óeirðir sem hafa átt það til að verða undanfarin áramót. Bílabrennur hafa orðið árlegur viðburður í úthverfum landsins eftir óeirðir þar árið 2005, en á síðasta ári var kveikt í tæplega 1.500 bílum í Frakklandi og höfðu þeir aldrei verið fleiri.
Frakkland Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Fleiri fréttir Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Sjá meira