Jafnt í Róm | Moukoko yngstur í sögu Meistaradeildarinnar Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 8. desember 2020 19:50 Youssoufa Moukoko varð í kvöld yngsti leikmaður sögunnar til að taka þátt í Meistaradeild Evrópu. Alexandre Simoes/Getty Images Úrslitin réðust í F-riðli Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Lazio tryggði sér sæti í 16-liða úrslitum með 2-2 jafntefli gegn Club Brugge á heimavelli í kvöld. Þá komst Youssoufa Moukoko í sögubækur Meistaradeildarinnar er Borussia Dortmund vann Zenit St. Pétursborg 2-1 í Rússlandi og þar með riðilinn. Club Brugge endar í 3. sæti og fer því í 32-liða úrslit Evrópudeildarinnar. Joaquin Correa kom Lazio yfir á Ólympíuleikvanginum í Róm í kvöld en Rud Vomer jafnaði metin skömmu síðar og staðana 1-1 eftir aðeins 15. mínútna leik. Heimamenn fengu vítaspyrnu eftir tæpan hálftíma og skoraði Ciro Immobile af öryggi úr spyrnunni. Staðan 2-1 í hálfleik og þannig var hún allt fram á 76. mínútu þegar Hans Vanaken jafnaði metin fyrir gestina. Kom það verulega á óvart þar sem gestirnir frá Belgíu höfðu verið manni færri frá því á 39. mínútu þegar Eduard Sobol fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt. Gestirnir náðu ekki að pota inn þriðja markinu og lokatölur því 2-2. Úrslitin þýða eins og áður sagði að Lazio kemst í 16-liða úrslit á meðan Club Brugge fer í Evrópudeildina. Í Rússlandi kom Borussia Dortmund til baka eftir að lenda 1-0 undir þegar Sebastian Driussi kom Zenit yfir. Lukasz Piszczek og Axel Witsel skoruðu með tíu mínútna millibili fyrir gestina og tryggðu þeim þar með 2-1 sigur og toppsæti riðilsins. - @BVB's Youssoufa Moukoko breaks the record of youngest player in the Champions League16y-018d - Youssoufa Moukoko16y-086d - Célestine Babayaro16y-102d - Rayan Cherki16y-128d - Alen Halilovic16y-148d - Youri Tielemans#ZenitBVB #UCL— Gracenote Live (@GracenoteLive) December 8, 2020 Þá varð Youssoufa Moukoko yngsti leikmaður í sögu Meistaradeildarinnar þegar hann kom inn af bekknum á 58. mínútu leiksins. Kom hann inn á fyrir Felix Passlack í stöðu hægri vængbakvarðar. Meistaradeild Evrópu Fótbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti