Snjókoma í kortunum Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 19. nóvember 2020 07:20 Það verður áfram ansi kalt á landinu í dag en svo fer veður hlýnandi. Veðurstofa Íslands
Það verður fremur hægur vindur í dag og víða léttskýjað framan af degi. Þá verður frost yfirleitt á bilinu tvö til tíu stig að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. Eftir hádegi snýst hann síðan í vaxandi suðaustanát og þykknar upp með stöku éljum sunnantil á landinu. Í kvöld er svo spáð suðaustan tíu til átján metrum á sekúndu og rigningu eða snjókomu með köflum sunnan- og vestanlands, en heldur hægari vindur og þurrt að mestu fyrir norðan. Það hlýnar með deginum og verður hiti um og yfir frostmarki seint í kvöld. Í nótt mun síðan lægja og draga úr úrkomu en í fyrramálið fer aftur að rigna sunnan- og suðaustanlands í fyrramálið. Síðdegis á morgun snýst í vaxandi norðanátt með snjókomu, slyddu eða rigningu um landið norðan- og austanvert. Sunnan heiða styttir hins vegar víða upp. Veðurhorfur á landinu: Fremur hæg suðlæg átt og víða léttskýjað, frost 2 til 10 stig. Vaxandi suðaustanátt eftir hádegi og þykknar upp með stöku éljum S-til. Suðaustan 10-18 m/s í kvöld og rigning eða snjókoma með köflum S- og V-lands, en heldur hægari og þurrt að mestu fyrir norðan. Hlýnandi, hiti um og yfir frostmarki seint í kvöld. Lægir og dregur úr úrkomu í nótt, en fer aftur að rigna S- og SA-lands í fyrramálið. Snýst í vaxandi norðanátt síðdegis á morgun með snjókomu, slyddu eða rigningu um landið N- og A-vert, en styttir víða upp sunnan heiða. Á föstudag: Suðaustan og austan 5-10 m/s og rigning með köflum, en úrkomulítið fyrir norðan. Snýst í vaxandi norðanátt síðdegis með snjókomu, slyddu eða rigningu um landið N- og A-vert, en styttir upp S- og V-lands. Hiti 0 til 6 stig, en vægt frost í innsveitum á N-landi. Á laugardag: Norðan og norðvestan 15-20 um landið A-vert, annars hægari vindur. Snjókoma eða rigning N-lands, en þurrt að kalla sunnan heiða. Dregur úr úrkomu og lægir eftir hádegi. Hiti breytist lítið. Á sunnudag: Hæg breytileg átt og bjart með köflum, en dálítil él við S-ströndina. Frost 0 til 8 stig, kaldast inn til landsins. Á mánudag og þriðjudag: Austlæg átt og þurrt að kalla, frost 1 til 9 stig. Dálítil rigning eða slydda með S-ströndinni og hiti 0 til 4 stig.
Veður Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Fleiri fréttir Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Sjá meira