Spá allt að tólf stiga frosti Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 17. nóvember 2020 07:32 Það verður ansi kalt á landinu á morgun eins og þetta hitaspákort Veðurstofunnar sýnir. Þá er líka spáð frosti víðast hvar í dag. Veðurstofa Íslands
Það verður norðlæg átt í dag, víða fimm til tíu metrar á sekúndu en átta til þrettán metrar á sekúndu norðvestantil og með austurströndinni. Að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands verða dálítil él um norðaustanvert landið en skýjað með köflum annars staðar. Víða ætti að sjást til sólar sunnan- og vestanlands. Þá er spáð fremur hægri breytilegri átt á morgun og léttskýjuðu en áfram norðan strekkingi með austurströndinni. Frost víðast hvar, núll til átta stig í dag en tvö til tólf stig á morgun, kaldast inn til landsins. Veðurhorfur á landinu: Norðan- og norðaustan 5-13 m/s. Skýjað að mestu um norðanvert landið og dálítil él norðaustantil, en yfirleitt léttskýjað sunnan heiða. Frost víða 0 til 6 stig. Dregur smám saman úr vindi og úrkomu síðdegis og kólnar meira. Breytileg átt 3-8 m/s og víða léttskýjað á morgun, en norðan 8-13 með austurströndinni. Frost 2 til 12 stig, kaldast í innsveitum fyrir norðan. Á miðvikudag: Breytileg átt 3-8 m/s og víða léttskýjað, en norðan 8-13 með austurströndinni framan af degi, skýjað með köflum og úrkomulítið þar. Frost 2 til 12 stig, kaldast í innsveitum fyrir norðan. Á fimmtudag: Hægviðri, víða léttskýjað og talsvert frost fyrripart dags. Vaxandi suðaustanátt síðdegis og þykknar upp sunnanlands, slydda eða rigning þar um kvöldið og hlýnar. Á föstudag: Suðaustan 8-15 og rigning eða slydda, en hægari vindur og úrkomulítið norðanlands fram eftir degi. Austlæg eða breytileg átt 5-10 og víða dálítil væta um kvöldið. Hiti 0 til 5 stig. Á laugardag: Norðan 10-18 m/s átt með rigningu og síðar snjókomu á norðurhelmingi landsins, en úrkomulítið á sunnanverðu landinu. Hiti kringum frostmark. Á sunnudag: Fremur hæg vestlæg át og stöku él á vestanverðu landinu, annars bjart með köflum. Frost víða 0 til 5 stig.
Veður Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Erlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Fleiri fréttir Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Sjá meira