Bíó og sjónvarp

Johnny Depp segir skilið við Fantastic Beasts

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Johnny Depp hefur leikið stórt hlutverk í Fantastic Beasts kvikmyndaseríunni.
Johnny Depp hefur leikið stórt hlutverk í Fantastic Beasts kvikmyndaseríunni. Vísir/Getty

Leikarinn Johnny Depp hefur ákveðið að segja skilið við Fantastic Beasts kvikmyndaseríuna. Nokkrir dagar eru liðnir frá því að Depp tapaði meiðyrðamáli sem hann höfðaði gegn breska miðlinu The Sun vegna greinar sem hann birti þar sem Depp var sagður hafa beitt eiginkonu sína ofbeldi.

Depp skrifaði aðdáendum sínum bréf sem hann birti á samfélagsmiðlum þar sem hann greindi frá því að hann hafi verið beðinn um að segja upp hlutverki sínu sem Gellert Grindelwald í Fantastic Beasts myndunum og sagðist hann „bera virðingu fyrir og vera sammála þeirri beiðni.“ Þá sagði hann meiðyrða dóminn „súrrealískan“ og sagðist ætla að áfrýja málinu.

Warner Bros kvikmyndaverið staðfesti fráhvarf Depps og greindi frá því að annar leikari yrði fenginn í hans stað.

Depp, sem er 57 ára gamall, höfðaði mál gegn The Sun, sem gjarnan er kallaður slúðurmiðill, vegna greinar sem birt var árið 2018. Í greininni var því haldið fram að hann hafi ráðist á fyrrverandi eiginkonu sína Amber Heard. Niðurstaða dómsins var sú að staðhæfingarnar væru „efnislega sannar.“

Depp kom stuttlega fram í kvikmyndinni Fantastic Beasts and Where to Find Them, sem gefin var út árið 2016, sem Grindelwald og lék sömu persónu í framhaldsmyndinni Fantastic Beasts: The Crimes of Grindelwald sem kom út árið 2018.

Myndirnar eru hluti af Harry Potter sagnaheiminum og gerast fyrir tíma galdramannsins unga. Myndirnar eru byggðar á bókum eftir JK Rowling. Þriðja kvikmyndin í seríunni er nú í vinnslu og verður hún frumsýnd sumarið 2022.

Meiðyrðamálið er hluti af stærra máli, um að heimilisofbeldi hafi farið fram í sambandi Depps og Heard á árunum 2013 til 2016, þar til hjónin skyldu. Dómarinn í máli Depps gegn The Sun komst að þeirri niðurstöðu að 12 af 14 meintum ofbeldistilvikum sem koma fram í málinu hafi átt sér stað.

Depp er einnig í málaferlum í Bandaríkjunum gegn Heard vegna skoðanagreinar sem hún skrifaði og birtist í the Washington Post.


Tengdar fréttir

Johnny Depp tapar meið­yrða­máli gegn The Sun

Bandaríski leikarinn Johnny Depp hefur tapað meiðyrðamáli gegn breska blaðinu The Sun. Depp höfðaði málið gegn blaðinu eftir að hafa verið sakaður um að hafa beitt þáverandi eiginkonu sína ofbeldi.

Segir Heard hafa málað á sig marblettina

Bandaríski leikarinn Johnny Depp þvertekur fyrir að hafa beitt Amber Heard, fyrrverandi eiginkonu sína, líkamlegu ofbeldi. Þvert á móti hafi það verið hún sem beitti hann ofbeldi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.