Skoðun

Til­finningin sem þú ert að finna fyrir er sorg

Bergsveinn Ólafsson skrifar

Ein mest lesna greinin í Harvard Business review síðan í mars greip mig allhressilega um daginn. Hún fjallar um að við séum öll að eiga við sorg þessa dagana – bæði hver fyrir sig og sameiginlega. Ég tengdi mikið við greinina. Hún hjálpaði að koma tilfinningunum mínum í orð og skilja hvað ég og við öll værum að fara í gegnum saman. Ég vildi því deila með ykkur mínum hugsunum – í þeirri von um að einhver tengi við þær.

Í greininni er talar David Kestler, höfundur tveggja bóka um sorg, um að það getur verið gott að þekkja sex stig sorgar. Þau eru ekki endilega línuleg og geta birst í misjafnri röð:

Afneitun

Gerist oft í byrjun. “Ástandið er aldrei að fara hafa áhrif á mig.”

Reiði

“Það er verið að skikka mig til að þurfa að vera heima og truflar mitt daglega líf verulega.”

Samkomulag

“Þetta eru einungis tvær vikur og svo verður allt betra.”

Dapurleiki

“Ég veit ekki hvenær þessu öllu mun linna.”

Sátt

“Þetta er raunveruleikinn sem við eigum við, nú þarf að finna leiðir til að aðlagast honum.”

Merking

Ljósið á dimmum tímum. Að finna einhverja merkingu úr aðstæðum. Fólk er að kunna betur að meta að fara í langa göngutúra. Ástandið gaf fólki leyfi til að slaka aðeins á í þessum hraða heimi og staldra við sjálfan sig og lífið. Fólk hefur áttað sig á að tæknin gerir þeim kleift að halda sambandi, þó svo hún muni aldrei koma sem staðgengill fyrir mannlega nærveru. Fólk talar um að þakklæti fyrir því sem það tók áður sem sjáfsögðum hlut hafi aukist eins og að geta farið í klippingu, ræktina og knúsað annað fólk. Ég trúi að við munum finna merkingu úr ástandinu núna og gerum það áfram í framhaldinu.

Styrkurinn liggur í sátt og merkingu - þar einblínum við á það sem við getum stjórnað og það róar huga okkar. Merking hjálpar okkur að draga einhvern skilning og lærdóm af ástandinu - sem getur verið afar kraftmikið.

Ég hef persónulega farið í gegnum öll stigin, oftar en einu sinni. Undanfarna daga hef ég til dæmis verið dapur og reiður. Það er líka bara allt í lagi að leyfa sér að vera dapur og reiður. Þó svo það sé raunin dvel ég ekki lengi á þeim tilfinningum heldur tek ástandið í sátt og finn einhverja merkingu úr þessu öllu saman. Persónulega finnst mér það hjálpa mér töluvert og minnkar alla umfram þjáningu.

Að lokum gefur sorgin tækifæri á að sýna öðrum samkennd. Það eru flestir að eiga við einhverja erfiðar tilfinningar líkt og sorg eða ótta þessa dagana – bara í mismiklu magni og birtingarmynd. Samkennd getur hjálpað okkur að tengjast betur, setja okkur í spor annarra og minnt okkur á að við erum öll í þessu saman.

Verum góð við hvort annað. Við munum komast í gegnum þetta saman.

Höfundur er fyrirlesari með MSc gráðu í jákvæðari sálfræði og þjálfunarsálfræði.




Skoðun

Sjá meira


×