Faraldurinn á fleygiferð í Frakklandi Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 28. ágúst 2020 23:30 Emmanuel Maccron, forseti Frakklands, fyrir utan lyfjaverksmiðju þar í landi í dag. AP/Christian Hartmann
Tilfelli kórónuveirusmita í Frakklandi er í veldisvexti samkvæmt heilbrigðisráðuneytinu þar í landi. 7.379 tilfelli greindust þar í dag, rétt fyrir neðan met í fjölda daglegra smita sem sett var í mars síðastliðnum. Alls hafa þá 267 þúsund manns greinst með kórónuveiruna í Frakklandi en undanfarna daga hefur smitum fjölgað mjög. Þannig greindust 6.111 í gær og 5.429 með veiruna á miðvikudag. Þrátt fyrir hina miklu fjölgun hefur innlögnum á spítala hins vegar ekki fjölgað að ráði, auk þess sem að dauðsföllum fer heldur ekki fjölgandi. Heilbrigðisráðuneytið segir að megnið af þeim sem séu að smitast nú sé yngra fólk. Alls létust tuttugu í gær af völdum Covid-19 en alls hafa rétt rúmlega 30 þúsund manns látist af völdum faraldursins. Emmanuel Maccron, forseti Frakklands, segir að ekki sé hægt að útiloka að annað útgöngubann verði sett á í Frakklandi, haldi smitum áfram að fjölga. Hann segir þó að ríkisstjórn hans sé að leita leiða til þess að setja á miklar samfélagslegar takmarkanir, svo efnahagur landsins verði ekki illa úti. Nú þegar hefur verið gripið til hertra aðgerða víða um Frakkland og er til að mynda grímuskylda á almannafæri í París, höfuðborg Frakklands. Þá hefur sveitarstjórnum verið gefin heimild til þess að loka börum og veitingastöðum svo dæmi séu tekin, á þeim svæðum þar sem smitum fer fjölgandi.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Frakkland Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Fleiri fréttir Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Sjá meira