Sandá í Þistilfirði til SVFR Karl Lúðvíksson skrifar 16. apríl 2020 08:25 Jón Þór Ólason Formaður SVFR
Ein af þeim ám sem hefur verið sveipuð dulúð er Sandá í Þistilfirði en þær breytingar hafa átt sér stað að áin er komin í nýjar hendur. Stangaveiðifélag Reykjavíkur hefur gert samning um leigu á ánni og því hljóta félagsmenn SVFR að fagna því gir sem eiga sér þann draum að veiða í þessari á sem er meðal annars rómur fyrir hátt hlutfall stórlaxa og fallegt umhverfi. Hér fyrir neðan er tilkynning frá SVFR."SVFR og Veiðifélag Sandár hafa undirritað samning um langtímasamstarf, frá og með sumrinu 2021. Það eru söguleg tíðindi, því allt frá árinu 1964 hefur áin verið í leigu hjá lokuðum hópi einstaklinga – veiðifélaginu Þistlum - sem hafa skipt veiðitímabilinu á milli sín. Áin hefur fyrir vikið verið sveipuð mikilli dulúð og mun færri komist að henni en hafa viljað.„Það er í einu orði sagt stórkostlegt fyrir SVFR að geta boðið sínum félagsmönnum leyfi í þessari perlu Þistilfjarðar, sem er í hópi albestu laxveiðiáa landsins. Hún eykur fjölbreytnina í ársvæðaflóru SVFR, þar sem áin er í sjálfsmennsku og fellur fullkomnlega að þörfum margra félagsmanna. Þá er Sandá sannkölluð stórlaxaá og er ánægjuefni að bæta slíku ársvæði við þá flóru sem við höfum upp á að bjóða. Það er stórkostleg upplifun að veiða Sandá. Hún er margslungin og fjölbreytt, því bæði er veitt í tilkomumiklum gljúfrum, í straumþungum strengjum, guðdómlegum breiðum og löngum, djúpum hyljum. Sandá býður einfaldlega upp á allt." segir Jón Þór Ólason, formaður SVFR.Veiðisvæði Sandár er um 14 km langt frá sjávarósi og allt upp að Sandárfossi. Veitt er á 3 - 4 stangir og eru merktir veiðistaðir um 40 talsins. Vegna leyndarinnar sem hvílt hefur yfir Sandá er lítið til að mynd- og kynningarefni, en SVFR mun bæta úr því og kynna þessa kyngimögnuðu á vandlega áður en sala veiðileyfa hefst síðar á árinu.„Við erum stolt af því að landeigendur við Sandá hafi valið að ganga til samninga við SVFR þegar ákvörðun lá fyrir um að endurnýja ekki samning við núverandi leigutaka. Við munum leggja okkur öll fram við að vernda og hlúa að þessari miklu veiðiperlu og hlökkum mjög til samstarfsins við heimamenn um frekari uppbyggingu ársvæðisins. Þetta eru mikil tímamót enda eru það margir sem eiga þann draum að egna fyrir stórlaxinn í Sandá,“ segir Jón Þór."
Stangveiði Mest lesið Vikuveiðin í Veiðivötnum 1.906 fiskar Veiði Norðurá að gefa fleiri tveggja ára laxa Veiði Mikið af vænum fiski veiðist í Elliðavatni Veiði Haustfagnaður SVFR haldinn 19. október Veiði Besti tíminn framundan í Stóru Laxá Veiði Góð veiði í vötnum fyrir norðan um helgina Veiði 22 útskrifaðir úr námi í veiðileiðsögn Veiði 400 Urriðar á land í Laxá í köldu veðri Veiði Sumarið gert upp í Víðidalsá Veiði 94 sm hængur úr Laxá í Kjós Veiði