Litla systir lægðarinnar nálgast óðfluga úr suðvestri Atli Ísleifsson skrifar 20. febrúar 2020 06:51 Áttin verður norðlæg og allhvass vindur algengur, hvassast um landið norðvestanvert, en stormur í norðvesturfjórðungi landsins fram yfir hádegi.
Lægðin sem herjaði á Sunnlendinga í gær fikrar sig nú austur fyrir land og mun stjórna veðrinu hjá okkur áfram í dag. Áttin verður norðlæg og allhvass vindur algengur, hvassast um landið norðvestanvert, en stormur í norðvesturfjórðungi landsins fram yfir hádegi. Í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar segir að með norðanáttinni fylgi snjókoma norðantil, en sunnanlands rofar til ef að líkum lætur. Hiti verður nálægt frostmarki, og vindur 13 til 23 metrar á sekúndu, hvassast um landið norðvestanvert. „Á morgun er lægðin títtnefnda ekki enn úr sögunni, hún verður þá stödd á djúpunum austnorðaustur af landinu og veldur éljagangi norðantil. Litla systir lægðarinnar nálgast okkur hins vegar óðfluga úr suðvestri á morgun og úrkomubakki frá henni er væntanlegur inná sunnanvert landið með slyddu eða snjókomu. Vesturland virðist ætla að sleppa við úrkomu að mestu. Allur þessi lágþrýstingur viðheldur stífum vindi um mestallt land á morgun. Það lítur því út fyrir að veðrið ætli áfram að valda ferðalöngum einhverjum töfum og vandræðum, sérílagi þeim sem ætla sér yfir fjallvegi,“ segir í tilkynningunni. Gular viðvaranir eru í gildi á Vestfjörðum og á landinu norðanverðu, auk austast á landinu. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Norðaustan og austan 13-20 m/s, en 8-13 á austanverðu landinu. Snjókoma eða él á Vestfjörðum og Norðurlandi, en slydda eða snjókoma sunnanlands. Hiti kringum frostmark. Á laugardag: Norðlæg átt 5-13 og él, en úrkomulítið á Suðurlandi. Frost víða 0 til 5 stig. Á sunnudag: Suðvestan 8-15 og él, en léttskýjað um landið austanvert. Frost 1 til 6 stig. Á mánudag: Norðaustanátt og snjókoma um tíma í flestum landshlutum. Frost 0 til 5 stig. Á þriðjudag og miðvikudag: Norðlæg átt og kalt í veðri. Snjókoma eða él norðantil á landinu, en úrkomulítið sunnanlands.
Veður Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Fleiri fréttir Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Sjá meira