Elvar Már með 19 stig í ótrúlegum sigri Borås Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 28. febrúar 2020 20:30 Elvar Már, hér í leik með Njarðvík, var frábær í liði Borås í kvöld. Vísir/Bára
Leikstjórnandinn Elvar Már Friðriksson skoraði 19 stig í ótrúlegum eins stigs sigri Borås Basketball á Wetterbygden Stars í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Lokatölur 103-102 þar sem Borås voru undir nær allan síðasta fjórðung leiksins. Leikurinn var mjög fjörugur og ljóst að bæði lið voru ekki í neinu sérstöku stuði til að spila vörn. Staðan var jöfn 28-28 eftir 1. leikhluta en gestirnir í Wetterbygden leiddu með tveimur stigum í hálfleik, staðan þá 49-47. Áfram voru gestirnir með yfirhöndina þegar síðasti fjórðungur hófst en munurinn þá þrjú stig. Borås voru nær alltaf skrefi á eftir gestunum og leit út fyrir að toppliðið myndi tapa nokkuð óvænt á heimavelli þangað til leikurinn var í þann mund að renna sitt skeið. Þá náðu Borås nokkrum góðum körfum og snéru leiknum sér í vil í þann mund sem leikurinn kláraðist. Elvar Már var með 19 stig í leiknum ásamt því að hann gaf átta stoðsendingar í liði Borås sem situr sem fyrr á toppi sænsku úrvalsdeildarinnar með 52 stig eftir 30 leiki. Liðið hefur unnið 26 leiki og aðeins tapað fjórum.
Körfubolti Mest lesið Í beinni: Stjarnan - Tindastóll | Stólarnir geta tryggt sér titilinn Körfubolti Glódís fagnaði titlunum í þýskum þjóðbúningi á troðfullu torgi Fótbolti Í beinni: Afturelding - KR | Skemmtikraftarnir mæta í Mosfellsbæinn Íslenski boltinn Uppgjörið: Fram - Vestri 1-0 | Frammarar stöðvuðu sigurgöngu Vestra Íslenski boltinn „Ég var ekki sáttur með sjálfan mig“ Körfubolti Átti Henderson að fá rautt spjald? Enski boltinn Uppgjörið: ÍBV - KA 0-0 | Ekkert samba í sólinni Íslenski boltinn Glæsimark Rice gulltryggði Arsenal Meistaradeildarsæti Enski boltinn Löggan óskaði Hildigunni til hamingju Handbolti Rombley fluttur á sjúkrahús með sjúkrabíl Körfubolti Fleiri fréttir Sjáðu ljótt brot Hlyns sem gerði Audda reiðan Rombley fluttur á sjúkrahús með sjúkrabíl Í beinni: Stjarnan - Tindastóll | Stólarnir geta tryggt sér titilinn „Ég var ekki sáttur með sjálfan mig“ Tap í fyrsta leik Alba Berlin Daníel tekur við KR Stjörnurnar fögnuðu og hátíð á götum New York eftir sigur á meisturunum Friðrik Ingi hættur með Hauka Hörður kominn undan feldinum Harkaði af sér veikindi og Nuggets tryggðu oddaleik Úlfarnir í úrslit vestursins Fékk að mæta aðeins seinna í vinnu eftir Íslandsmeistara fögnuð „Menn vissu bara upp á sig sökina“ „Þegar þeir eru orðnir þreyttir hinum megin þá erum við með eitt stykki Basile“ Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 110-97 | Stólarnir svöruðu og leiða nú úrslitaeinvígið Lovísa samskiptastjóri, „mini-mes“ og ástæðan fyrir engum leikhléum Vonast til að Giannis standist freistinguna og klári ferilinn hjá Milwaukee Stólarnir klárir og vita hvað fór úrskeiðis í leik tvö: „Við misstum hausinn“ „Einhvers staðar er skemmt epli ef niðurstaða þingsins var svona afdráttarlaus“ Aftur í Síkið: „Held að menn séu búnir að grafa þetta“ Slógu toppliðið út og komust í austur úrslitin annað árið í röð Myndaveisla: Haukar Íslandsmeistarar eftir ótrúlegan oddaleik „Að lokum var það betra liðið sem vann“ „Við ætluðum ekki að tapa þremur leikjum í röð“ Tatum með slitna hásin Uppgjörið: Haukar - Njarðvík 92-91 | Haukar Íslandsmeistarar 2025 Sjáðu stemmningsmyndbandið fyrir oddaleikinn „Mætum óttalaus“ Settu nýtt met í heppni og fá velja fyrstir Meistararnir á bjargbrún og langri bið Knicks að ljúka Sjá meira