Norwich heldur í vonina eftir óvæntan sigur á Leicester Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 28. febrúar 2020 22:15 Leikmenn Leicestar niðurlútir eftir að Norwich skoraði. Vísir/Getty
Norwich City heldur í vonina um að halda sæti sínu í ensku úrvalsdeildinni eftir mjög svo óvæntan 1-0 sigur á Leicester City í kvöld. Fyrir leik kvöldsins á Carrow Road, heimavelli Norwich, reiknuðu flestir með sigri gestanna þó svo að Jaime Vardy væri fjarverandi. Leikurinn var ekki mikið fyrir augað og var staðan markalaus þegar liðin gengu til búningsherbergja í hálfleik. Síðari hálfleikur var skömminni skárri en Jamal Lewis kom heimamönnum yfir á 70. mínútu og reyndist það eina mark leiksins. Allavega eina löglega mark leiksins en Kelechi Iheanacho hélt hann hefði komið gestunum yfir áður en Lewis skoraði. Eftir að markið hafði verið skoðað kom í ljós að knötturinn snerti hönd Iheanacho í aðdragandanum og markið því dæmt af. Lokatölur 1-0 Norwich í vil sem er nú komið með 21 stig, aðeins fjórum stigum frá öruggu sæti en liðið er þó enn í botnsæti ensku úrvalsdeildarinnar. Leicester er sem fyrr í 3. sæti deildarinnar en nú aðeins sex stigum á undan Chelsea sem er í 4. sætinu. City hold on for a HUGE victory! pic.twitter.com/Fz8nVP4BeR— Norwich City FC (@NorwichCityFC) February 28, 2020
Enski boltinn Mest lesið „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Körfubolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Marlena er sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Enski boltinn Fleiri fréttir „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Endurkoma hjá Dagnýju Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Ferguson saknar fótboltans Alisson tæpur fyrir leikinn gegn Bournemouth Segir Arsenal sífellt betra en vill engar ásakanir um sálfræðistríð Alexander-Arnold reynir að kaupa Nantes Með tvær ferðatöskur af fíkniefnum Sjá meira