Liverpool skuldbindur sig til að hjálpa Klopp að yfirgefa félagið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. febrúar 2020 11:30 Jürgen Klopp er búinn að búa til frábært Liverpool lið sem er líklegt til afreka þar til að samningur hans rennur úr árið 2024. Getty/Laurence Griffiths
Það vill að sjálfsögðu enginn Liverpool stuðningsmaður að knattspyrnustjórinn Jürgen Klopp hætti með liðið en Klopp fékk hins vegar mjög sérstakt ákvæði í nýja samninginn sinn. Liverpool fólk fagnaði vel í desember þegar félagið tilkynnti það að Jürgen Klopp hefði framlengt samning sinn við Liverpool til ársins 2024 enda sannkölluð jólagjöf til stuðningsmanna félagsins. Nú hafa enskir fjölmiðlar grafið það upp að Klopp fékk að setja athyglisvert ákvæði inn í samninginn sinn. Liverpool certainly know how to treat a manager who will go down as a legend... https://t.co/tBKqNjqwND— TEAMtalk (@TEAMtalk) February 11, 2020 Klopp er 52 ára gamall og hefur stýrt Liverpool liðinu síðan í október 2015 eða í rúm fjögur ár. Hann verður orðinn 56 ára þegar samningur hans á Anfield rennur út. Draumur Liverpool væri að halda honum enn lengur enda hefur Þjóðverjinn byggt upp frábært lið hjá Liverpool sem er á góðri leið með að vera Evrópu-, heims- og Englandsmeistari. Það er samt ólíklegt að það gerist því í fyrrnefndum samningi þá skuldbindur Liverpool sig til að hjálpa Jürgen Klopp að yfirgefa félagið og fara aftur til Þýskalands þegar samningurinn rennur út. Forráðamenn Liverpool vilja skilja vel við stjórann sinn sem er þegar kominn í hóp þeirra goðsagnakenndustu hjá þessu sigursæla félagi. Það eru hins vegar fjögur tímabil þangað til í viðbót við það sem er í gangi núna. Á þeim tíma er líklegt að Jürgen Klopp haldi áfram að hlaða inn titlum á Anfield. Liverpool liðið er ungt ennþá og það er líka fullt af spennandi ungum leikmönnum að koma inn eins og sást á árangri krakkaliðsins í enska bikarnum.
Enski boltinn Mest lesið „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Körfubolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Enski boltinn Marlena er sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport Fleiri fréttir „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Endurkoma hjá Dagnýju Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Ferguson saknar fótboltans Alisson tæpur fyrir leikinn gegn Bournemouth Segir Arsenal sífellt betra en vill engar ásakanir um sálfræðistríð Alexander-Arnold reynir að kaupa Nantes Með tvær ferðatöskur af fíkniefnum Sjá meira