Grindvíkingurinn Seth LeDay dæmdur í eins leiks bann Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. febrúar 2020 14:15 Seth LeDay slær hér Kyle Johnson. Mynd/S2 Sport
Bandaríkjamaðurinn SethLeDay verður ekki með Grindavík í bikarúrslitaleiknum komist liðið þangað. Hann var dæmdur í eins leiks bann af Aga- og úrskurðarnefnd KKÍ í dag. Grindavík spilar við Fjölni í dag í undanúrslitum Geysisbikarsins og sigurvegarinn mætir annað hvort Stjörnunni en Tindastól í úrslitaleiknum á laugardaginn.SethLeDay fékk eins leiks bann fyrir að slá Stjörnumanninn KyleJohnson í hnakkann á meðan boltinn var fjarri. Atvikið varð í deildarleik liðanna á dögunum. Dómararnir tóku ekki eftir þessu en Stjörnumenn sendu inn kjæru eftir að hafa horft á leikinn á myndbandi þar sem brotið sást vel. Aga- og úrskurðarnefnd KKÍ tók málið fyrir í dag og dæmdi leikmanninn í bann. Grindvíkingar reyndu að fá meiri tíma til að skila sínum gögnum til að seinka dómnum og bjarga mögulegum bikarúrslitaleik fyrir SethLeDay en beiðni þeirra var hafnað. Aga- og úrskurðarnefnd KKÍ ráðfærði sig við dómara leiksins og taldi engan vafa á því að leikmaðurinn hefði verið rekinn út úr húsi hefðu dómararnir tekið eftir brotinu. „Af myndbandsupptökunni sem fylgdi ábendingu má sjá að hinn kærði, án sérstaksaðdraganda og víðs fjarri þeim stað sem boltinn er, slær leikmann Stjörnunnar þéttingsfast í höfuðið með flötum lófa. Dómarar leiksins sáu viðkomandi atvik ekki með þeim hætti sem af myndbandsupptökunni leiðir og gátu þ.a.l. ekki myndað sér skoðun á því þá. Í áliti þeirra kemur fram að atvik þetta hefði átt að leiða til brottrekstarvillu og er það rökstutt með ítarlegum hætti. Aga-og úrskurðarnefnd tekur undir þetta álit dómaranna. Hefur því verið sýnt fram á með óyggjandi hætti að brot hafi verið framið sem hefði átt að leiða til brottrekstrarvillu og hinum kærða hefði þar meðátt að vera vísað af leikvelli, sbr. ákvæði 7. mgr. 6. gr,“ segir í niðurstöðu dómsins. „Nefndin telur að háttsemi hins kærða falli undir verknaðarlýsingu c) liðar 13. gr. reglugerðarinnar en þar segir að hafi einstaklingi verið vísað af leikvelli eða keppnisstað fyrir alvarlega grófan leik eða ósæmilega framkomu skuli aga-og úrskurðarnefnd úrskurða viðkomandi í eins eða tveggja leikja bann,“ segir enn fremur í úrskurðinum sem má lesa allan hér.
Dominos-deild karla Mest lesið Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti Svíar tala um valdaskipti í skandinavískum íþróttum Fótbolti HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Fótbolti Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Körfubolti Fleiri fréttir Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Sjá meira