Ægir: Markmiðið að vinna alla titla sem í boði eru Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 15. febrúar 2020 15:39 Ægir fagnar með félögum sínum í leikslok. vísir/daníel
Ægir Þór Steinarsson var valinn mikilvægasti leikmaður úrslitaleiks Geysisbikars karla þar sem Stjarnan vann 14 stiga sigur á Grindavík, 75-89. Ægir skoraði 19 stig og gaf 14 stoðsendingar. Fyrri hálfleikurinn var jafn en í þeim seinni sigu Stjörnumenn fram úr. „Við unnum þetta á breiddinni. Margir lögðu í púkkið, bæði í vörn og sókn. Ég held að það hafi komið sjá þreyta í þá þegar leið á leikinn og þeir settu ekki öll skotin niður sem þeir gerðu í fyrri hálfleik,“ sagði Ægir við Vísi eftir leik. „Það gerði gæfumuninn og við fráköstuðum betur. Þetta var nokkuð svipaður leikur og í undanúrslitunum. Við héldum dampi og lönduðum svo sigrinum.“ Ægir segir að Grindvíkingar hafi verið erfiðir viðureignar í dag. „Ég var drullusmeykur í sannleika sagt. Þeir eru hættulegir og maður veit aldrei hvað maður fær frá þeim. Þeir lúra bara og setja svo niður þrista,“ sagði Ægir. Stjörnumenn hittu afar illa fyrir utan í fyrri hálfleik en skotin rötuðu rétta leið í þeim seinni. „Það opnaðist fyrir þetta og við náðum sóknarfráköstum þótt við höfum klikkað á skotum. Við héldum dampi,“ sagði Ægir. Stjarnan hefur orðið bikarmeistari tvö ár í röð og varð auk þess deildarmeistari í fyrra. Ægir vonast til að fleiri titlar komi í Garðabæinn í vetur. „Heldur betur. Við ætlum að gera betur en í fyrra og auðvitað er markmiðið að vinna alla titla sem í boði eru,“ sagði Ægir að endingu.
Dominos-deild karla Tengdar fréttir Leik lokið: Grindavík - Stjarnan 75-89 | Stjörnumenn bikarmeistarar annað árið í röð Eftir jafnan fyrri hálfleik seig Stjarnan fram úr í þeim seinni og landaði sigri. Stjörnumenn hafa fimm sinnum orðið bikarmeistarar í sögu félagsins. 15. febrúar 2020 16:15 Mest lesið Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Fótbolti Svíar tala um valdaskipti í skandinavískum íþróttum Fótbolti Bodö/Glimt græddi yfir sex milljarða á Evrópuævintýrinu Fótbolti Fleiri fréttir Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Sjá meira
Leik lokið: Grindavík - Stjarnan 75-89 | Stjörnumenn bikarmeistarar annað árið í röð Eftir jafnan fyrri hálfleik seig Stjarnan fram úr í þeim seinni og landaði sigri. Stjörnumenn hafa fimm sinnum orðið bikarmeistarar í sögu félagsins. 15. febrúar 2020 16:15