Ekkert ferðaveður á Suður- og Suðausturlandi Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir og Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifa 19. febrúar 2020 15:23 Vindaspá Veðurstofunnar fyrir klukkan 18 í dag.
Appelsínugul veðurviðvörun tók gildi á Suðurlandi núna klukkan 15 og gildir hún til klukkan 23 í kvöld. Áður hafði verið gefin út gul viðvörun fyrir þennan landshluta en spáin hefur verið uppfærð og viðvörunin með. Á vef Veðurstofunnar segir að spáð sé norðaustan 23 til 28 metrum á sekúndu undir Eyjafjöllum. Þá geti vindhviður farið staðbundið yfir 40 metra á sekúndu. Slydda eða snjókoma með lélegu skyggni og ekkert ferðaveður. Á vef Vegagerðarinnar segir að búið að sé að loka veginum undir Eyjafjöllum og að Vík vegna veðurs auk þess sem veginum frá Gígjukvísl að Jökulsárlóni hefur verið lokað. Þá verður veginum um Mývatns- og Möðrudalsöræfi lokað kl. 18:00, en appelsínugul viðvörun tekur gildi á Suðausturlandi klukkan 17 og er í gildi til 22. Þar verður norðaustan 18 til 28 metrar á sekúndu með talsverðri snjókomu eða slyddu. Hvassast verður í Mýrdal og Öræfum þar sem vindhviður geta staðbundið farið yfir 40 metra á sekúndu. Ekkert ferðaveður er heldur í þessum landshlutum að því er segir á vef Veðurstofunnar. Annars staðar á landinu, að frátöldu höfuðborgarsvæðinu og Faxaflóa, hafa gular viðvaranir verið gefnar út. Mismunandi er hvenær þær taka gildi og hversu lengi þær gildi. Nánar má kynna sér viðvaranirnar á vef Veðurstofunnar. Fréttin var uppfærð kl. 17:16.
Veður Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Fleiri fréttir Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Sjá meira