Gular viðvaranir eftir hádegi sunnan- og vestantil Atli Ísleifsson skrifar 7. febrúar 2020 06:42 Gular viðvaranir taka gildi eftir hádegi í dag. veðurstofan
Veðurstofan spáir vaxandi suðaustanátt í dag með rigningu, hvassviðri eða stromi sunnan- og vestanlands eftir hádegi, fimmtán til 23 metrum, en hægari vindi annars staðar. Lengst af verður þurrt norðaustantil á landinu. Reikna má með að hitinn verði á bilinu fjögur til tíu stig, hlýjast syðst. „Lægir seint í kvöld, dregur úr úrkomu og kólnar. Fremur hæg suðlæg átt á morgun en strekkingur með vesturströndinni. Él eða slydduél og hiti um og yfir frostmarki en að mestu þurrt um norðanvert landið og víða vægt frost. Áfram suðlæg átt á sunnudag og víða él, en snýst í norðanátt í byrjun næstu viku og léttir til um sunnanvert landið,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Á vef Vegagerðarinnar segir að aðalleiðir séu mikið til auðar en sums staðar sé hálka á fáfarnari vegum. Talsvert sé um skemmdir vegna hlýinda og víða slæmar holur í bundnu slitlagi. Eins hefur víða þurft að takmarka ásþunga í því viðkvæma ástandi sem skapast þegar frost er að fara úr jörð. Snjóþekja og éljagangur er á Steingrímsfjarðarheiði, aðrar leiðir er að mestur greiðfærar þó eru hálkublettir á nokkrum fjallvegum. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Sunnan og suðaustan 10-18 m/s, hvassast við vesturströndina. Slydduél eða él, en að mestu þurrt norðanlands. Hiti 0 til 4 stig, en vægt frost í innsveitum fyrir norðan. Á sunnudag: Suðaustan og austan 3-8 og él, en þurrt norðantil á landinu. Norðaustan 10-15 og dálítil snjókoma á Vestfjörðum um kvöldið. Frost 0 til 5 stig. Á mánudag og þriðjudag: Norðlæg átt, víða 5-10 m/s, og él eða snjókoma norðan- og austanlands. Yfirleitt úrkomulaust á sunnanveðru landinu, þó líkur á stöku éljum allra syðst. Frost um land allt. Á miðvikudag: Austan og norðaustanátt og dálítil él, en úkromulítið vestanlands. Kalt í veðri. Á fimmtudag: Austlæg átt, dálítli snjókoma og vægt frost, en þurrt um norðvanvert landið og talsvert frost.
Veður Mest lesið Taldi vegið að æru sinni innan hundaræktarsamfélagsins Innlent Neitar að segja ef sér þrátt fyrir hávær áköll Erlent Vill að borgin útbúi skýrar leiðbeiningar svo fleiri geti farið sömu leið og Arion Innlent „Ég er ekkert búin að læra“ Innlent Hófu frumkvæðisathugun á aðkomu Jóns í ráðuneytinu Innlent Skyndileg krafa upp á milljónir króna eins og lélegt grín Innlent Kolefnisgjald hækkað en um minna en til stóð Innlent Hér eru „þessar elskur“ Innlent Skorar á fólk að dvelja heilan dag á kaffistofu Samhjálpar Innlent Töluðu saman í fyrsta sinn í tvö ár Erlent Fleiri fréttir Taldi vegið að æru sinni innan hundaræktarsamfélagsins Vill að borgin útbúi skýrar leiðbeiningar svo fleiri geti farið sömu leið og Arion Kolefnisgjald hækkað en um minna en til stóð „Ég er ekkert búin að læra“ Hófu frumkvæðisathugun á aðkomu Jóns í ráðuneytinu Rýnt í kannanir og tendrun jólatrés í Hafnarfirði Alma verði heilbrigðisráðherra í stjórn Kristrúnar Rjúfa tólf vikna múrinn við rannsókn í Neskaupstað Skorar á fólk að dvelja heilan dag á kaffistofu Samhjálpar Húsfélag sektaði íbúa um 10 þúsund vegna of lélegra sameignarþrifa Hér eru „þessar elskur“ Hærra kolefnisgjald og minna til nýja Landspítalans vegna frestunar kílómetragjalds Fjárlögin áfram rædd í dag og styttist í þinglok Bein útsending: Frambjóðendur tala við nemendur Allar landamærastöðvar efldar og þeim mögulega fækkað Færa til fjármuni til þess að bæta aðstöðu á bráðamóttöku Brenna líkin á nóttunni Starfsmenn Arion himinlifandi með daggæsluna Svona var fundur ráðherra og ríkislögreglustjóra um landamærin Óvissustig á Hellisheiði, í Þrengslum og á Mosfellsheiði Skyndileg krafa upp á milljónir króna eins og lélegt grín Rannsaka hópárás á tvo einstaklinga Fólk velji frekar Sósíalista því VG hafi stungið kjósendur í bakið Fjárlaganefnd gefur grænt ljós á útboð á Vestfjörðum Sýkna í málinu sem setti svip sinn á forsetakosningarnar Sextán flugferðum aflýst Konan er fundin Þórður Snær afboðaði komu sína Hitamet féll Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Sjá meira