Ferðamálaskóli Íslands með námskeið í veiðileiðsögn Karl Lúðvíksson skrifar 30. janúar 2020 10:00
Nú í mars mánuði mun Ferðamálaskóli Íslands í annað skipti bjóða upp á nám fyrir áhugasama aðila sem vilja gerast leiðsögumenn innlendra og erlendra veiðimanna í ám og vötnum landsins. Veiðileiðsögunámið er hagnýtt nám og nýtist í senn starfandi leiðsögumönnum og áhugasömum aðilum sem hafa áhuga á að sinna slíkri leiðsögn. Námið gefur innsýn í grunnatriði og ítarlegri þætti er varða veiðileiðsagnarþjónustu. Sérfróðir leiðsögumenn kenna undirstöðuatriði stangveiða og sérfræðingar miðla fróðleik um fiskana er við sögu koma og vistfræði þeirra. Meðal kennsluefnis eru undirstöðuatriði er varða líffræði og lífshætti íslenskra ferskvatnsfiska. Fjallað er um árstíðabundnar göngur fiska, gönguhegðun í ferskvatni og sjó og samspil þátta er varða m.a. fæðugöngur. Farið er yfir þætti er varða samskipti leiðsögumanna við veiðimenn allt frá komu þeirra í veiðihús, meðan á dvöld þeirra stendur og þar til dvöl hans lýkur. Farið verður í tveggja daga ferð í Eystri Rangá þar sem tekin verður fyrir meðal annars kasttækni með einhendum og tvíhendum. Lögð er áhersla á Skyndihjálp og áfallahjálp þar sem litið er sérstaklega til þátta er tengjast hættum við ár og vötn. Farið er yfir handtök er varða frágang á afla eftir veiði, blóðgun og flökun á fiski. Samhliða verður farið yfir grunnþætti sem varða meðhöndlun fiska með hliðsjón af "veiða og sleppa" Allir leiðbeinendur hafa áratuga reynslu sem leiðsögumenn eða vísindamenn hver á sínu sviði. Námið er alls 90 stundir og fer bæði fram í kennslustofu og á bökkum Eystri Rangár. Leiðbeinendur eru: Þröstur Elliðason, fiskeldisfræðingur - Strengir Erlendur Steinar Friðriksson, sjávarútvegsfræðingur Jóhannes Hinriksson, rekstrarstjóri – Ytri Rangá Reynir Friðriksson, sjávarútvegsfræðingur Fulltrúi frá Landsambandi veiðifélaga Björn Rúnarsson, Vatnsdalsá. Ólafur Vigfússon, Veiðihornið Björn Theodórsson, fiskeldisfræðingur og leiðsögumaður Kristinn Helgason, Landsbjörg Sr. Bragi Skúlason, Landspítalinn Allar nánari upplýsingar veitir Friðjón Sæmundsson fs@menntun.is
Stangveiði Mest lesið Syðri Brú að verða uppseld Veiði Langá á Mýrum komin yfir 2.600 laxa Veiði Laxinn mættur í Norðurá og Þverá Veiði Stundum vill hann bara Frigga Veiði Lifnar aðeins yfir Soginu Veiði Veiðin í Hofsá er betri en í fyrra Veiði Ytri Rangá fer vel af stað Veiði Haukadalsá komin yfir 700 laxa Veiði 200 laxar komnir úr Staðarhólsá Veiði Ný heimasíða og vefsalan komin í gang hjá SVFR Veiði