„Þurfum að komast að því hvort Gummi hringdi í Alexander eða Alexander hringdi í hann“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. janúar 2020 11:00 Íslensku strákarnir fagna sigri á móti Dönum. EPA-EFE/ANDREAS HILLERGREN
Jóhann Gunnar Einarsson, sérfræðingur Seinni bylgjunnar, er hrifinn af því sem Guðmundur Guðmundsson er að gera með íslenska landsliðið. Vísir fékk Jóhann Gunnar til að fara yfir Evrópumót íslenska landsliðsins til þessa en fram undan er mikilvægur leikur við Ungverja í dag. „Gummi ætlaði að taka þrjú ár í þetta og byggja upp nýtt lið. Hann sá að það myndi ekki ganga því hann fór aðra leið inn á þetta mót. Við þurfum að komast að því hvort Gummi hringdi í Alexander eða Alexander hringdi í hann. Það þarf að hrósa þeim manni mikið sem tók af skarið þar því Alexander er búinn að vera frábær,“ sagði Jóhann Gunnar Einarsson í samtali við Arnar Björnsson. Viðtalið má sjá hér að neðan. „Hann kallar á Kára aftur og Bjöggi er kominn aftur. Þetta er ótrúlega góð blanda og það er skemmtilega ára yfir liðinu. Maður getur tekið nánast hvern einasta leikmann fyrir en við getum byrjað til dæmis á Ými og Elvari í vörninni. Þeir hafa verið frábærir og Ýmir kemur mér virkilega á óvart en hann er að stíga risaskref fram á við í varnarleik,“ sagði Jóhann. „Ýmir var mikið að fá tvær mínútur á fyrri mótum og hefur verið klaufi. Hann er búinn að laga staðsetningar hjá sér,“ sagði Jóhann. Elvar er okkar besti varnarmaður „Janus hefur komið frábærlega inn í sóknina á miðjunni sem gerir það að verkum að Elvar getur hvílt aðeins í sókn. Elvar þarf að einbeita sér meira að vörninni því hann er okkar besti varnarmaður. Ég gæti talað hér í allan dag,“ sagði Jóhann Gunnar en nefnir sérstaklega Viggó Kristjánsson í hægri skyttunni. „Fyrir þremur til fjórum árum þá var maður hálfpartinn að hlæja af honum í Gróttu. Hann var bara að gefa „no-look“ sendingar og svona. Góður leikmaður og allt það en ég sá það aldrei fyrir að hann myndi ná þessum árangri,“ sagði Jóhann. „Endurkoman hjá Bjögga er frábær, Kári er búinn að vera besta línumaðurinn á mótinu og svo mætti lengi telja,“ sagði Jóhann Gunnar en hvað með frammistöðu þjálfarans sem er búinn að leggja nótt við dag við að undirbúa liðið. Hann sefur ekki mikið þessa dagana. Arnór Þór Gunnarsson.EPA-EFE/ANDREAS HILLERGREN „Þetta er að snúast svolítið upp í það að vera hans mót. Það varð til skemmtilegt umtal eftir að hann vann Danina og hvernig þeir fóru með hann. Hann ákvað að hvíla hornamennina í leik tvö og er að gefa leikmönnum tækifæri sem hann var gagnrýndur fyrir að gera ekki þegar hann var með landsliðið hér áður fyrr. Þá var hann mikið að spila á sömu mönnunum,“ sagði Jóhann. Eins og inntökuprófið í læknisfræði „Guðmundur er búinn að leggja þessa leiki fullkomlega upp. Þetta voru tvö mjög erfið en mismunandi próf. Það fyrsta á móti Dönum var eins og inntökuprófið í læknisfræði. Þeir rúlluðu því upp. Svo var erfitt að þurfa síðan að gíra sig upp í kaflapróf í ensku og halda kannski að þeir væri betri en þeir eru. Við höfum oft fallið á svoleiðis prófum en sem betur fer náðum við því með glans,“ sagði Jóhann. Enn eitt prófið hjá íslenska liðinu er síðan lokaleikurinn í riðlinum gegn Ungverjum en þar getur íslenska liðið náð sér í tvö stig inn í milliriðilinn. „Það verður spennandi að sjá. Þetta er í fyrsta sinn í mótinu þar sem við mætum liði sem er með örvhentan leikmann. Við höfum ekki þurft að glíma við það hingað til og höfum því getað sett áhersluna á vinstri vængina. Ungverjar eru með fullt sjálfstraust. Þó að við séum komnir áfram þá er þetta algjör lykilleikur því þetta er í raun fyrsti leikurinn í milliriðli,“ sagði Jóhann. „Við viljum fá Danina upp þótt að það sé ótrúlegt að segja það. Þá förum við með tvö stig upp í milliriðil og Danirnir geta kroppað stig af hinum liðunum. Með því gera þeir þetta að meiri graut og jafnari riðli sem er að ég held gott fyrir okkur. Það er samt ótrúlegt að vera í erfiðasta riðlinum en vera samt komnir áfram eftir tvo leiki,“ sagði Jóhann Gunnar. Kári Kristjánsson.EPA-EFE/ANDREAS HILLERGREN „Þetta er líf og fjör. Það er eins gott að þeir haldi áfram að standa sig en ekki að allir séu að hrósa þeim og svo fari þeir í eitthvað rugl. Þeir þurfa að vera áfram á tánum,“ sagði Jóhann Gunnar. Ungverjar unnu Rússa og leikur liðanna var ekkert sérstakur en það var annar bragur á ungverska liðinu í jafnteflinu við Dani. Með breiðari hóp en Ungverjar „Ég held að þeir hafi farið svolítið kærulausri í Rússaleikinn og ætluðu að fara nokkuð létt með það. Þeir höfðu kannski stillt þetta upp sem úrslitaleik á móti okkur. Þeir voru komnir með bakið upp við vegg og sýndu það á móti Dönum að þeir eru frábærir. Þeir eru með frábæran markmann og eru með ungt lið. Ég var ánægður að sjá Nagy á bekknum bara fyrir okkur,“ sagði Jóhann. Leikurinn gegn Dönum gæti hafa tekið sinn toll af orku Ungverjanna, nýtist það íslenska liðinu? „Ég veit það ekki. Það eru orðin svo góð fræði í þessu og góðir sjúkraþjálfarar. Endurheimtin er orðin svo góð. Ég held að við séum með breiðari hóp en Ungverjar og ættum að gera keyrt yfir þá. Við keyrðum yfir Rússana, þeir áttu í erfiðleikum og vilja kannski spila hægari bolta. Við bara keyrum yfir þá,“ sagði Jóhann Gunnar en það má sjá allt viðtalið hér fyrir neðan.
EM 2020 í handbolta Mest lesið Umfjöllun: Ísland – Eistland 1-1 Svekkjandi jafntefli á Laugardalsvelli Fótbolti Blaðamannafundi Heimis frestað og von á yfirlýsingu Fótbolti Mæta til leiks gegn Ísrael: „Líður engum vel með að spila þennan leik“ Fótbolti Ringulreið hjá Heimi og leikur við Ísrael í uppnámi Fótbolti „Stoltur af henni og hún á þetta mjög mikið skilið“ Sport Haaland mætir ekki í viðtal eftir tíðindi dagsins Sport Úrvalsdeildarfélög undirbúa málsókn gegn City Sport Sjáðu stórkostlega aukaspyrnu Daníels Tristans gegn Frökkum Fótbolti Allt vitlaust á landsliðsæfingu þegar ungir mættu gömlum Sport Einkunnir Íslands: Vonbrigðarbyrjun í Þjóðardeildinni Sport Fleiri fréttir Haukur náði að hefna sín á Reyni Þór Stórbrotin varsla Grétars tryggði Haukum montréttinn: „Endar alltaf í svona vitleysu“ „Ég verð augljóslega að taka þetta tap alfarið á mig“ „Við erum Haukar og við horfum alltaf bara á toppinn“ Uppgjörið: FH - Haukar 34-35 | Haukar á toppnum og Hafnarfjörður er rauður Sigurður Dan skellti í lás og Stjarnan valtaði yfir Fram Lygilegt sigurmark HK í Vestmannaeyjum Dregið í bikarnum: Meistararnir fá gesti úr Garðabæ „Meira en tvö stig undir“ Garðar Ingi með þrjú mörk og Ómar og Gísli flugi áfram Reynir Þór hafði betur gegn Hauki í framlengdum leik Einar verulega ósáttur: „Mér finnst þetta bara galin ummæli“ Jóhanna um landsliðið: „Auðvitað er það svekkjandi“ Reynir vann Íslendingana sem tapa nánast aldrei Haukar - Valur 28-24 | Stórleikur Jóhönnu og Haukar með fullt hús stiga 33 mörk í tveimur leikjum: Mætti á æfingar og leiki með pabba ÍR vann öruggan sigur og ÍBV tók Selfoss Fram og Stjarnan unnu bæði Þorsteinn Leó frá í 8-12 vikur Stórsigur hjá Magdeburg og svekkjandi jafntefli í Danmörku ÍBV beið eftir betra veðri og sótti sigur Reynir Þór og félagar töpuðu með einu marki í mikilli dramatík Í skýjunum með dönsku nýlenduna í Þorpinu „Erum að spila fyrir allt Þórs samfélagið“ „Þetta móment á þessum stað á móti KA fyrir mitt félag að sjá fögnuðinn og upplifa hann var bara æðislegt“ Haukar á toppinn og jafntefli á Selfossi Valur bætti vörnina úr síðasta leik Elín Rósa og Díana Dögg unnu stórsigur Þórsarar höfðu betur í slagnum um Akureyri Orri Freyr markahæstur gegn Íslendingaliðinu Sjá meira
„Þetta móment á þessum stað á móti KA fyrir mitt félag að sjá fögnuðinn og upplifa hann var bara æðislegt“