Íslenska karlalandsliðið í handbolta tapaði illa fyrir Ungverjum í þriðja leik sínum á Evrópumótinu 2020 sem fer fram í Svíþjóð, Noregi og Austurríki. Ungverjar unnu leikinn að lokum með sex marka mun, 24-18.
Íslenska liðið var í góðum málum í fyrri hálfleik og þremur mörkum yfir í hálfleik, 12-9. Leikur liðsins hrundi í þeim síðari.
Seinni hálfleikurinn var einn versti sóknarleikur Íslands í manna minnum. Ungverjar unnu seinni hálfleikinn með níu mörkum og íslenska liðið skoraði aðeins 6 mörk samanlagt á þessum 30 mínútum.
Ungverski markvörðurinn Roland Mikler varð 19 skot þar af 3 víti en hann varði 11 af 17 skotum íslenska liðsins í seinni hálfleiknum eða 65 prósent skotanna. Íslenska liðið klikkaði á öllum fjórum vítum sínum í leiknum því varamarkvörðurinn Márton Székely varði líka eitt víti.
Aron Pálmarsson og Guðjón Valur Sigurðsson voru markahæstir með fjögur mörk hvor en þeir skoruðu ekki eitt einasta mark í seinni hálfleiknum. Aron var með 4 mörk og 3 stoðsendingar í fyrri hálfleiknum en kom ekki að marki í þeim seinni þar sem hann klikkaði á öllum þremur skotum sínum og tapaði að auki fjórum boltum.
Skotnýting íslenska liðsins fór niður í 30 prósent í seinni hálfleik þar sem íslensku strákarnir klikkuðu á 14 af 20 skotum sínum. Á móti fóru Ungverjar hvað eftir inn á línuna þar sem Bence Bánhidi skoraði sex af átta mörkum sínum í seinni hálfleiknum.
Vísir fylgist vel með tölfræði íslenska liðsins á mótinu og hefur nú tekið saman þá leikmenn sem sköruðu fram úr í tölunum í þessum þriðja leik Íslands á mótinu.
Hér fyrir neðan má sjá toppa íslenska liðsins í tölfræðinni.
- Íslensku landsliðsmennirnir á móti Ungverjalandi á EM 2020 -
Hver skoraði mest:
1. Aron Pálmarsson 4
1. Guðjón Valur Sigurðsson 4
3. Alexander Petersson 3
3. Kári Kristján Kristjánsson 2
Hver varði flest skot:
1. Björgvin Páll Gústavsson 8 (31%)
2. Viktor Gísli Hallgrímsson 2/1 (25%)
Hver spilaði mest í leiknum:
1. Alexander Petersson 58:15 mín.
2. Guðjón Valur Sigurðsson 49:17 mín.
3. Björgvin Páll Gústavsson 45:48 mín.
4. Aron Pálmarsso 45:27 mín.
5. Elvar Örn Jónsson 36:58
Hver skaut oftast á markið:
1. Aron Pálmarsson 11
2. Alexander Petersson 8
3. Guðjón Valur Sigurðsson 7
4. Arnór Þór Gunnarsson 3
Hver gaf flestar stoðsendingar:
1. Alexander Petersson 6
2. Aron Pálmarsson 3
3. Janus Daði Smárason 2
4. Ólafur Guðmundsson 1
4. Arnór Þór Gunnarsson 1
4. Elvar Örn Jónsson 1
Hver átti þátt í flestum mörkum (Mörk + stoðsendingar):
1. Alexander Petersson 9 (3+6)
2. Aron Pálmarsson 7 (4+3)
3. Guðjón Valur Sigurðsson 4 (4+0)
4. Janus Daði Smárason 3 (1+2)
Hver stoppaði oftast í vörninni (HB Statz):
1. Elvar Örn Jónsson 7
2. Ýmir Örn Gíslason 4
3. Alexander Petersson 4
4. Aron Pálmarsson 3
Hver tapaði boltanum oftast:
1. Aron Pálmarsson 5
2. Janus Daði Smárason 2
Hver vann boltann oftast:
1. Alexander Petersson 2
2. Arnór Þór Gunnarsson 1
3. Ólafur Guðmundsson 1
Hver fiskaði flest víti:
1. Alexander Petersson 2
2. Aron Pálmarsson 1
3. Viggó Kristjánsson 1
Hver hljóp mest: Alexander Peterson 4,6 km
Hver hljóp hraðast: Haukur Þrastarson 29 km/klst
Hver stökk hæst: Elvar Örn Jónsson 67 sm
Hver átti fastasta skotið: Aron Pálmarsson 128 km/klst
Hver átti flestar sendingar: Aron Pálmarsson 184
Hæsta einkunn íslensku leikmannanna í sókn (HB Statz):
1. Alexander Petersson 7,6
2. Guðjón Valur Sigurðsson 6,7
3. Aron Pálmarsson 6,5
4. Ólafur Guðmundsson 5,9
5. Janus Daði Smárason 5,9
Hæsta einkunn íslensku leikmannanna í vörn (HB Statz):
1. Alexander Petersson 7,8
2. Arnór Þór Gunnarsson 7,5
3. Elvar Örn Jónsson 7,2
4. Ýmir Örn Gíslason 7,0
5. Aron Pálmarsson 6,3
- Hvaðan komu flest mörk íslenska liðsins í leiknum -
7 með langskotum
0 með gegnumbrotum
6 af línu
0 úr hægra horni
3 úr hraðaupphlaupum (0 með seinni bylgju)
0 úr vítum
2 úr vinstra horni
- Plús & mínus kladdinn í leiknum -
Mörk með langskotum: Ísland +1 (7-6)
Mörk af línu: Ungverjaland +2 (8-6)
Mörk úr hraðaupphlaupum: Jafnt (3-3)
Tapaðir boltar: Ísland +3 (12-9)
Fiskuð víti: Ísland +1 (4-3)
Varin skot markvarða: Ungverjaland +10 (20-10)
Varin víti markvarða: Ungverjaland +3 (4-1)
Misheppnuð skot: Ísland +9 (25-16)
Löglegar stöðvanir: Ísland +1 (23-22)
Refsimínútur: Jafnt (8 - 8 mín.)
- Góðu og slæmu kaflarnir í leiknum -
Fyrri hálfleikurinn:
1. til 10. mínúta: Jafnt (3-3)
11. til 20. mínúta: Ísland +3 (5-2)
21. til 30. mínúta: Jafnt (4-4)
Seinni hálfleikurinn:
31. til 40. mínúta: Ungverjaland +1 (4-3)
41. til 50. mínúta: Ungverjaland +3 (5-2)
51. til 60. mínúta: Ungverjaland +4 (5-1)
Byrjun hálfleikja: Ungverjaland +1 (7-6)
Lok hálfleikja: Ungverjaland +4 (9-5)
Fyrri hálfleikur: Ísland +3 (12-9)
Seinni hálfleikur: Ungverjaland +9 (15-6)
