David Moyes byrjar vel sem stjóri West Ham en hann hefur unnið fyrstu tvo leiki sína sem stjóri liðsins eftir að hann tók við af Manuel Pellegrini í síðustu viku.
West Ham vann í dag 2-0 sigur á útivelli gegn C-deildarliðinu Gillingham en í fyrsta leik Moyes vann West Ham 4-0 sigur á Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni.
Fyrsta mark leiksins skoraði hægri bakvörðurinn Pablo Zabaleta stundarfjórðungi fyrir leikslok en Hamrarnir réðu ferðinni allan leikinn.
Pablo Zabaleta has scored his first goal for West Ham in their #FACup game against Gillingham.
— Squawka Football (@Squawka) January 5, 2020
The Hammers finally break the deadlock. pic.twitter.com/1nnpq2qjSu
Síðara markið skoraði Pablo Fornals í uppbótartímanum og tryggði Hömrunum 2-0 sigur. West Ham er því komið áfram í 32-liða úrslitin.