Tugir í sóttkví í Vestmannaeyjum eftir gestakomur um verslunarmannahelgina Kristín Ólafsdóttir skrifar 7. ágúst 2020 10:43 Búist er við að fleiri Eyjamenn fari í sóttkví eftir því sem líður á daginn. Vísir/vilhelm
Einstaklingar sem heimsóttu Vestmannaeyjar um verslunarmannahelgina hafa greinst með Covid-19, sjúkdóminn sem kórónuveiran veldur. Fjörutíu og átta íbúar í Eyjum eru nú í sóttkví vegna smitanna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu í Vestmannaeyjum. Smitrakningarteymi almannavarna rekur nú ferðir hinna smituðu. Von er á að fleiri verði skikkaðir í sóttkví eftir því sem líður á daginn. Enginn er þó með staðfest smit í Vestmannaeyjum að svo stöddu. Aðgerðastjórn í Vestmannaeyjum hefur verið virkjuð vegna málsins. Stjórnin ítrekar mikilvægi þess að Eyjamenn gæti að smitvörnum og fari að fyrirmælum stjórnvalda til að hefta útbreiðslu veirunnar í samfélaginu. Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn sagði í samtali við fréttastofu fyrir hádegi að gærdagurinn hefði verið sá stærsti með tilliti til nýsmitaðra í þeirri bylgju faraldursins sem nú gengur yfir. Grípa þurfti til einkar harðra aðgerða í Vestmannaeyjum vegna kórónuveirunnar í vor eftir að hópsýking kom upp í bænum. Á tímabili voru nokkrir tugir smitaðir og hundruð í sóttkví. Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum var blásin af um miðjan júlí og var því lítið um að vera í Eyjum um verslunarmannahelgina. Í tilkynningu lögreglu frá því á mánudag kom þó fram að nokkur erill hafi verið í Eyjum um nóttina. Töluverð ölvun hafi verið í bæjum og mikið um gleðskap í heimahúsum og görðum sem lögregla hafi haft afskipti af. Fréttin hefur verið uppfærð.
Vestmannaeyjar Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maðurinn skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent Máttu tæma lónið Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Fleiri fréttir Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Sjá meira