Tveir látnir í lestarslysi í Portúgal Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 31. júlí 2020 17:38 Lestarslysið varð á fjórða tímanum í dag í Coimbra héraði í Portúgal. EPA/PAULO CUNHA
Tveir dóu og minnst þrjátíu særðust þegar hraðlest fór út af sporum sínum í Coimbra héraði í Portúgal. Lestin var á ferð norður þegar hún lenti í árekstri við viðhaldsvél í bænum Soure samkvæmt frétt breska ríkisútvarpsins. Mário Jorge, bæjarstjóri Soure, sagði í samtali við portúgalska fréttamiðla að áreksturinn hafi skeð um klukkan hálf fjögur að staðartíma í dag. Þá sagði almannavarnadeild Portúgal, CNOS, í samtali við fréttastofu Reuters að viðbragðsaðilar séu á staðnum. Verið er að setja upp bráðabirgðarsjúkrahús nærri slysstaðnum.EPA/PAULO CUNHA Talsmaður CNOS sagði að 163 viðbragðsaðilar, þar á meðal slökkviliðsmenn og tvær sjúkraþyrlur, séu á staðnum. 240 farþegar voru um borð í Alfa Pendular lestinni þegar áreksturinn varð en lestin er sú hraðskreiðasta í Portúgal. Fleiri viðbragðsaðilar eru á leið á staðinn og verið er að setja upp bráðabirgðarspítala nærri slysstað. Samkvæmt staðarmiðlum eru enn einhverjir farþegar fastir inni í lestinni. Þá sagði sjónarvottur í samtali við portúgalska fréttablaðið Diário de Noticias að mikil ringulreið hafi verið í lestinni eftir áreksturinn og að einn farþeganna hafi hrópað: „Leggist öll niður á jörðina!“
Portúgal Samgönguslys Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Erlent Fleiri fréttir Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Sjá meira