Ákæra ekki lögregluþjóninn sem skaut Brown til bana Stefán Ó. Jónsson skrifar 31. júlí 2020 07:42 Lögreglumaðurinn Darren Wilson sagði að hinn 18 ára Michael Brown hafi reynt að ná af sér byssunni. Wilson var sakaður um að skjóta Brown til bana en verður ekki ákærður. vísir/ap/afp
Saksóknarar í bandarísku borginni St. Louis hafa ákveðið að ákæra ekki lögreglumanninn sem skaut Michael Brown, svartan táning, til bana í ágúst árið 2014. Drápið á Brown leiddi til mikilla mótmæla í borginni Ferguson sem urðu að lokum til stofnunar Black Lives Matter-hreyfingarinnar þar sem lögreguofbeldi er mótmælt. Morðinu á Brown var jafnframt mótmælt víða um heim. Saksóknarar segja að eftir fimm mánaða rannsókn, þar sem málið var allt tekið upp að nýju, hafi þeir komist að þeirri niðurstöðu að sönnunargögn séu ekki næg í málinu til að ákæra lögreglumanninn fyrir morð eða manndráp. Fyrri rannsókn hafði skilað sömu niðurstöðu og olli það miklum óeirðum í Ferguson í nóvember árið 2014. Lögreglumönnum og vitnum að atvikinu ber ekki saman en ljóst er að lögreglumaðurinn, Darren Wilson ók upp að Brown þar sem hann var á göngu í Ferguson. Nokkrum mínútum síðar var hinn átján ára gamli Brown látinn, eftir að hafa verið skotinn sjö sinnum hið minnsta.
Black Lives Matter Bandaríkin Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira