Hólmbert Aron skoraði er Álasund var kjöldregið af Bodø/Glimt Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 12. júlí 2020 18:20 Hólmbert Aron skoraði fyrir botnlið Álasund í dag en það dugði ekki til er liðið tapaði 6-1 fyrir toppliði deildarinnar. Vísir/Getty
Alfons Sampsted lék allan leikinn er topplið Bodø/Glimt kjöldró Íslendingalið Álasunds í norsku úrvalsdeildinni í dag. Matthías Vilhjálmsson lék allan leikinn í mikilvægum sigri Vålerenga. Alfons Sampsted og félagar í Bodø/Glimt jörðuðu Íslendingalið Álasund í norsku úrvals-deildinni í dag. Lokatölur 6-1 en alls tóku fjórir Íslendingar þátt í leiknum. Alfons lék allan tímann í hægri bakverði Bodo/Glimt. Hjá Álasund var Daníel Leó Grétarsson í miðjunni á þriggja manna vörn heimamanna. Davíð Kristján Ólafsson var í vinstri vængbakverði og Hólmbert Aron Friðjónsson var vinstra megin í þriggja manna framlínu. Hólmbert Aron skoraði mark Álasunds en hann jafnaði metin á 30. mínútu. Áður en fyrri hálfleik var lokið höfðu Bodø/Glimt skorað tvívegis til viðbótar og staðan því 3-1. Þeir bættu svo við þremur mörkum í síðari hálfleik og unnu þægilegan 6-1 sigur. Alfons og félagar eru sem fyrr á toppi deildarinnar með fullt hús stiga að loknum sjö umferðum. Molde kemur þar á eftir með 19 stig. Álasund er hins vegar í neðsta sæti deildarinnar með aðeins þrjú stig. Matthías Vilhjálmsson lék allan leikinn 1-0 sigri Vålerenga á Mjöndalen í dag. Eina mark leiksins kom á 13. mínútu en það gerði Fredrik Jensen. Vålerenga var manni færri frá 35. mínútu þegar markvörður liðsins, Kristoffer Klaesson, fékk beint rautt spjald fyrir að taka boltann með hendi fyrir utan teig. Matthías og félagar héldu út og náðu í þrjú mikilvæg stig. Liðið er í 3. sæti deildarinnar með 12 stig þegar sjö umferðum er lokið.
Fótbolti Norski boltinn Mest lesið „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti „Slakiði á“ Fótbolti Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Fótbolti Edwards rekinn frá Úlfunum Fótbolti LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Körfubolti Fleiri fréttir HM-minning: Breytti öllu með „hræðilegri“ klippingu á miðju HM Edwards rekinn frá Úlfunum „Slakiði á“ Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Ronaldo fór illa með færin í kvöld Birkir Már skorar þegar það er Megavika Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Geta unnið HM þrátt fyrir að eiga engan leikmann á topp 100 Infantino vill ekki biðjast afsökunar á miðaverðinu á HM „Við erum félagar, við Messi“ Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Messi sló ellimet gegn Íslandi Átta rauð spjöld í sama leiknum Ætla að kæra stuðningsmenn til lögreglunnar Leið Íslands á HM skýrist og leikur í Osló hjálpaði Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Sjáðu magnaða innkomu Messi og öll mörk heimsmeistaranna Mótmæli fyrir utan opnunarleik heimsmeistaramótsins Endurfundir Messi og Guðjohnsen HM-minningin: Þegar Úrúgvæ setti fjórar stjörnur á búninginn sinn HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Rafael Leão ver hnefahöggið sitt Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs „Þær eru ekkert eðlilega góðar“ Völlurinn og stúkan á floti stuttu fyrir leik Íslands og Argentínu Glódís Perla: Líður eins og þær séu 14 á móti 11 Sjá meira