Besta helgarveðrið fyrir norðan og í borginni Stefán Ó. Jónsson skrifar 3. júlí 2020 07:42 Borgarbúar hafa notið blíðunnar í Nauthólsvík síðustu daga. vísir/vilhelm
Fólk sem á leið um innsveitir Norðurlands í dag má búast við allt að 20 stiga hita á þeim slóðum. Hitinn annars staðar á landinu verður á bilinu 10 til 18 stig, helgarveðrið verður hvað best á norðanverðu landinu framanaf en búast má við brakandi blíðu á suðvesturhorninu á sunnudag. Veðurstofan gerir ráð fyrir fremur hægri austlægri átt í dag en austanstrekkingi með suðurströndinni. Þá verði skýjað með köflum sunnan- og vestanlands, stöku skúrir á þeim slóðum og hiti 10 til 16 stig. Þá verði að mestu skýjað og sums staðar þokubakkar austantil á landinu og hiti 7 til 12 stig, en léttskýjað á Norðurlandi og hiti að 20 stigum í innsveitum sem fyrr segir. Gert er ráð fyrir svipuðu veðri á morgun, laugardag. Þó muni að líkindum kólna lítillega með suðurströndinni seinni partinn. Norðaustanátt á sunnudag og léttir til um sunnan- og vestanlands með 12 til 17 stig hita, en skýjað um landið norðaustanvert og hiti 6 til 11 stig á þeim slóðum. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Austlæg eða breytileg átt 5-10 m/s. Sums staðar súld austantil á landinu, bjart með köflum norðanlands og dálitlar skúrir á Suður- og Vesturlandi. Hiti 10 til 16 stig, en svalara með austurströndinni. Á sunnudag: Norðaustan 5-10 en 10-15 með austurströndinni. Bjartviðri sunnan- og vestanlands, en sums staðar dálitlar skúrir síðdegis. Hiti 12 til 17 stig. Skýjað um landið norðaustanvert með hita 6 til 11 stig. Á mánudag: Norðvestan 5-10 og lítlsháttar væta á Norður- og Austurlandi með hita 6 til 11 stig. Bjartviðri sunnan heiða og úrkomulítið, og hiti að 18 stigum yfir daginn. Á þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag: Útlit fyrir hæga breytilega átt. Skýjað með köflum og líkur á skúrum í flestum landshlutum, einkum síðdegis. Hiti 8 til 15 stig.
Veður Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Fleiri fréttir BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar Sjá meira