„Jói Kalli virðist allavega hafa það í sér að honum er meinilla við KR“ Anton Ingi Leifsson skrifar 30. júní 2020 09:30 Hjörvar Hafliðason fór yfir leiki umferðarinnar í gær. vísir/s2s
Hjörvar Hafliðason, sparkspekingur, segir að bræðraslagurinn milli Jóhannesar Karls og Bjarna Guðjónssonar í leiknum ÍA og KR á sunnudagskvöldið hafi verið saga leiksins. Jóhannes Karl skaut föstum skotum í átt að KR-ingum og dómgæslunni eftir leikinn og það ekki í fyrsta skipti en hann hefur verið duglegur að skjóta á leikstíl KR-inga undanfarin ár. Klippa: Viðtal við Jóhannes Karl KR vann leikinn 2-1 eftir að hafa komist 1-0 yfir en rætt var um leikinn í Pepsi Max-tilþrifunum í gær þar sem þeir Kjartan Atli Kjartansson og Hjörvar Hafliðason fóru yfir leiki umferðarinnar. „Það er margt í þessu fyrir Jóa Kalla. Bróður hans er auðvitað á hinum bekknum. Þú getur ímyndað þér hversu mikið það ergir hann að tapa fyrir honum en það er gaman að Jói Kalli ber allavega virðingu fyrir rígnum á milli KR og Skagans,“ sagði Hjörvar í þættinum í gær. „Kiddi Kjærnested [fyrrum form. knspd. KR] hefur getað náð í hvern einasta leikmann sem honum hefur langað í upp á Skaga síðustu tuttugu árin. Ef að þeir sjá missed call frá KR þessir Skagamenn þá eru þeir búnir að keyra í bæinn um leið. Jói Kalli virðist allavega hafa það í sér að honum er meinilla við KR.“ Hjörvar bætti því svo síðar í umfjöllunarefni þáttarins um leikinn að bræðraslagurinn hafi verið saga leiksins. „Saga leiksins er auðvitað hvað Jóhannes Karl gjörsamlega þolir ekki að tapa fyrir þeim. Það var skemmtilegt að hann varla tók í höndina á Bjarna eftir leikinn. Hann henti inn einhverri tusku í hann,“ sagði Hjörvar og glotti við tönn. Klippa: Pepsi Max-tilþrifin - Jóhannes Karl og KR
Pepsi Max-deild karla KR ÍA Mest lesið Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ Enski boltinn „Þú ert farinn að verða þybbinn“ Fótbolti LIV heldur sínu striki í miðjum stormi Golf „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Enski boltinn „Ég get ekki breytt þessu“ Íslenski boltinn Hálfíslensk knattspyrnukona valin í norska landsliðið Sport Sjáðu alla dramatíkina hjá Bayern og Real Fótbolti Völdu kærustu hennar líka númer eitt Körfubolti Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Enski boltinn „Við erum mjög vonsviknir og mjög reiðir“ Fótbolti Fleiri fréttir „Ég get ekki breytt þessu“ Oliver keyptur til KA „Hleyp jafn hratt og Mikael“ Arnar sleit sin í hné og bíður svara varðandi framhaldið Hjartað brotið, hent eins og hverri annarri kúkableyju Ekki tapað fyrir Keflavík í 24 leikjum í röð „Þetta er bara löglegt mark sem er tekið af KA“ Segir ekkert vit í afsökunum Valsmanna Sjáðu öll mörkin úr fyrstu umferð Bestu deildarinnar „Dreymdi að ég myndi skora tvö“ „Ef hann lítur á þetta sem leikaraskap þá er hann á rangri hillu“ Uppgjörið: Fram - ÍA 3-3 | Chopart bjargaði stigi eftir rússibanareið Uppgjörið: KA - Stjarnan 2-3 | Flugu heim með stigin þrjú eftir fjörugan leik „Gáfum ódýr mörk“ „Frammistaðan verðskuldaði klárlega stig“ Áttu flug beint eftir leik og komust ekki í viðtöl „Sviðskvíðinn hvarf aldrei hjá lærisveinum mínum“ „Fannst þeir ekki eiga séns í okkur hérna í seinni hálfleik“ Uppgjörið: Valur - Þór Ak. 1-2| Nýliðarnir sóttu þrjú stig á Hlíðarenda Uppgjörið: KR - Keflavík 3-2 | Alexander Rafn fullkomnaði endurkomu KR-liðsins Uppgjörið: ÍBV - FH 1-1 | Tryggði stig í fyrsta leik „Deildin aldrei verið sterkari en í ár“ Bikarmeistararnir áfram eftir danskt sigurmark í lokin „Ekki gott fyrir hin liðin“ „Verður þetta ekki bara geðveiki?“ Segir að Ekroth verði að gera betur Víkingar áttu að fá víti: „Þetta er hendi, það er bara klárt“ Sjáðu fyrstu mörk tímabilsins í Bestu deildinni Uppgjörið:Víkingur Reykjavík - Breiðablik 1-1| Besta deildin opnar með stórmeistarajafntefli Oliver sagður á leið til Keflavíkur Sjá meira