Ættu að vera Ótta(r)slegnir að gefa Víkingum aukaspyrnu fyrir utan vítateig Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 2. júní 2020 14:00 Óttar Magnús Karlsson er með frábæran vinstri fót. vísir/bára
Óttar Magnús Karlsson skoraði gull af marki þegar Víkingur sigraði Stjörnuna, 4-3, í æfingaleik í Víkinni í gær. Hann skoraði tvö mörk fyrir bikarmeistarana í leiknum sem og Viktor Örlygur Andrason. Markið stórglæsilega skoraði Óttar með skoti beint úr aukaspyrnu sem fór í slána og inn, óverjandi fyrir Harald Björnsson í marki Stjörnunnar. Markið má sjá hér fyrir neðan. Víkingur vann Stjörnuna 4-3 í æfingaleik í gær. Óttar Magnús og Viktor Örlygur skoruðu sín hvor 2 mörkin. Hér er seinna markið frá Óttari pic.twitter.com/bXu3ty63Tu— Víkingur FC (@vikingurfc) June 2, 2020 Þetta er allavega þriðja markið sem Óttar skorar með skoti beint úr aukaspyrnu á svipuðum stað síðan hann kom aftur til Víkings um mitt síðasta sumar. Og öll þrjú aukaspyrnumörkin hafa verið á sama mark, því sem er nær félagsheimilinu. Óttar skoraði tvö mörk beint úr aukaspyrnum á fimm dögum í ágúst í fyrra. Bæði komu þau í 3-1 sigrum Víkings. Þann 11. ágúst skoraði Óttar beint úr aukaspyrnu þegar Víkingur vann ÍBV í 16. umferð Pepsi Max-deildarinnar. Hann endurtók svo leikinn í sigri á Breiðabliki í undanúrslitum Mjólkurbikarsins 15. ágúst. Óttar skoraði síðan markið sem tryggði Víkingum bikarmeistaratitilinn gegn FH 14. september. Óttar og félagar í Víkingi mæta KR í Meistarakeppni KSÍ á Meistaravöllum á sunnudaginn. Fyrsti leikur Víkinga í Pepsi Max-deildinni er gegn Fjölnismönnum sunnudaginn 14. júní.
Pepsi Max-deild karla Víkingur Reykjavík Mest lesið McGregor fundinn sekur og þarf að borga tugi milljóna í skaðabætur Sport Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Íslenski boltinn „Bjóst bara við því að við værum að fara vinna árið eftir“ Körfubolti Stelpurnar okkar rændar jöfnunarmarki? Handbolti Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Enski boltinn Í beinni: Arsenal - Nottingham Forest | Skytturnar mæta spútnikliðinu Enski boltinn Hvað gera flokkarnir fyrir afreksfólk í íþróttum? Sport Albert kemur til greina sem sá besti á Ítalíu Fótbolti Fjórtán ára á æfingum með Arsenal Enski boltinn Aðalþjálfari Ítalíu var með hausverk og horfði ekki á seinni hálfleik Körfubolti Fleiri fréttir Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Systur sömdu á sama tíma Katrín áfram í Kópavogi Bjarni áfram hjá KA Þórdís Elva semur við Þróttara Ritstjóri 433.is tekinn við Dalvík/Reyni Birkir Valur yfirgefur HK Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Kristófer áfram í Kópavogi Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Damir á leið til Asíu Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn „Velkomin í dal draumanna“ Fram og Reykjavíkurborg semja um frekari framkvæmdir í Úlfarsárdal Fer til Eyja og fetar í fótspor föður síns Hermann Hreiðars tekur við HK Sjá meira