Veður

Hlýjast á Austurlandi

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Gert er ráð fyrir að hlýjast verði á austan- og suðaustanlands í dag.
Gert er ráð fyrir að hlýjast verði á austan- og suðaustanlands í dag. Vísir/Vilhelm

Vestlæg átt, 3-10 metrar á sekúndu verður í dag, en 8-13 norð-vestanátt í kvöld. Bjart verður með köflum um landið austanvert.

Annars verður skýjað, og sums staðar einhver súld. Hiti á bilinu 8 til 17 stig, en hlýjast austan- og suðaustanlands. Þetta kemur fram á vef Veðurstofu Íslands.

Veðurhorfur á landinu næstu daga, samkvæmt Veðurstofu Íslands:

Miðvikudagur:

Vestan 5-13 m/s og skýjað, en bjartviðri SA-lands. Norðlægari og rofar til síðdegis. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast á SA-landi.

Fimmtudagur:

Norðaustan 5-13 og skúrir eða slydduél, einkum síðdegis en úrkomulítið V-lands. Hiti 2 til 14 stig, hlýjast SV-til.

Föstudagur:

Norðan 8-13 m/s, en 13-18 austast. Él á NA- og A-landi, en bjart með köflum sunnan heiða. Hiti 0 til 8 stig, mildast syðst.

Laugardagur:

Minnkandi norðanátt. Bjartviðri S-lands, annars skýjað en úrkomulítið. Áfram svalt í veðri.

Sunnudagur (sjómannadagurinn):

Breytileg átt og skýjað með köflum. Hiti 4 til 13 stig, hlýjast á S- og V-landi.

Mánudagur:

Útlit fyrir suðaustanátt með rigningu S- og V-lands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×