Bíó og sjónvarp

Opin­bera leikara í Kötlu-þáttum Baltasars

Atli Ísleifsson skrifar
Björn Thors, Íris Tanja Flygenring, Guðrún Ýr Eyfjörð, Baltasar Kormákur, Aliette Opheim, Ingvar E. Sigurðsson og  Baltasar Breki Samper.
Björn Thors, Íris Tanja Flygenring, Guðrún Ýr Eyfjörð, Baltasar Kormákur, Aliette Opheim, Ingvar E. Sigurðsson og  Baltasar Breki Samper. Netflix/Lilja Jónsdóttir

Búið er að tilkynna um þá leikara sem munu fara með aðalhlutverk í Netflix-þáttunum Kötlu í leikstjórn Baltasars Kormáks.

Í tilkynningu segir að í hópnum verður að finna Guðrúnu Ýr Eyfjörð (GDRN), Írisi Tönju Flygenring, Ingvar E. Sigurðsson, Þorstein Bachmann, Sólveigu Arnarsdóttur, Guðrúnu Gísladóttur, Baltasar Breka Samper, Björn Thors, auk Svíanna Aliette Opheim og Valter Skarsgård.

Draugabærinn Vík

Í tilkynningu segir um söguþráð þáttanna að einu ári eftir gos í Kötlu hafi líf bæjarbúa í friðsæla smábænum Vík breyst mikið og þeir neyðst til að yfirgefa bæinn þar sem jökullinn nálægt eldfjallinu hafi byrjað að bráðna. 

„Þeir örfáu íbúar sem eftir eru ná að halda samfélaginu gangandi og þrátt fyrir frábæra staðsetninguna er bærinn nánast orðinn að draugabæ. Dularfullir hlutir sem frusu djúpt inn í jökulinn fyrir löngu síðan koma nú í ljós og hafa ófyrirséðar afleiðingar,“ segir í tilkynningunni.

Sýnd á Netflix um allan heim

Í leikarahópnum er einnig að finna Harald Ara Stefánsson, Birgittu Birgisdóttur, Helgu Brögu Jónsdóttur, Björn Ingi Hilmarsson, Aldísi Amah Hamilton og hinn níu ára Hlyn Atla Harðarson.

Aðrir handritshöfundar en Baltasar að átta þátta seríunni eru þau Sigurjón Kjartansson, Davíð Már Stefánsson og Lilja Sigurðardóttir, en framleiðsla er í höndum RVK Studios. Katla verður sýnd á Netflix um allan heim en frumsýningardagur verður kynntur síðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.