Súld eða rigning sunnan- og vestanlands Atli Ísleifsson skrifar 28. maí 2020 07:17 Bætir í sunnanáttina á morgun, þá má búast við strekkingi nokkuð víða. Vísir/Vilhelm
Útlit er fyrir sunnan golu eða kalda í dag þar sem súld eða rigning verður viðloðandi sunnan- og vestanlands með hita á bilinu átta til tólf stig. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings og þar segir að í norðausturfjórðungi landsins rofar til með björtu veðri og hita að sautján stigum. „Bætir í sunnanáttina á morgun, þá má búast við strekkingi nokkuð víða. Áfram væta af og til um landið sunnan- og vestanvert. Þurrt og bjart norðaustanlands og hiti þar gæti náð 20 stigum, í fyrsta skipti á þessu ári og verður spennandi að sjá hvort sú spá rætist. Ekki er að sjá neinar meiriháttar breytingar í spánni fyrir helgina (laugardag og sunnudag). Áttin áfram suðlæg og líkur á vætu, en áfram þurrt norðaustantil. Þó ber að geta þess að hitatölur síga niðurávið, því svalari loftmassi berst yfir landið.“ Spákortið fyrir hádegið líkt og það leit út í morgun.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Sunnan 8-15 m/s og súld eða rigning sunnan- og vestanlands, en bjart með köflum norðaustantil á landinu. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast á Norðausturlandi. Á laugardag: Sunnan 5-13 og smáskúrir, en bjartviðri norðaustanlands. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast á Norðausturlandi. Á sunnudag (hvítasunnudagur): Suðvestan 5-10 og skúrir, en þurrt og bjart á austanverðu landinu. Hiti 7 til 15 stig, mildast á Austurlandi. Á mánudag (annar í hvítasunnu) og þriðjudag: Fremur hæg suðvestlæg átt og stöku skúrir, en yfirleitt þurrt austanlands. Hiti breytist lítið. Á miðvikudag: Vestlæg átt og súld eða rigning, en úrkomulítið á Suðausturlandi og Austfjörðum.
Veður Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Fleiri fréttir Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Sjá meira