Hræktu og köstuðu klinki í Bjarna Frosta sem svaraði með stórleik Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 19. maí 2020 14:00 Áhorfendur Sporting Lissabon létu Bjarna Frostason, markvörð Hauka, finna fyrir því. vísir/stöð 2 sport Vignir Svavarsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson voru gestir Henrys Birgis Gunnarssonar í Seinni bylgjunni í gær þar sem þeir fóru yfir upphafið að gullöld Hauka. Þeir rifjuðu m.a. upp frægan leik Hauka við Sporting í Lissabon í EHF-bikarnum tímabilið 2000-01. Þar fór markvörðurinn og flugmaðurinn Bjarni Frostason á kostum. „Bjarni Frosta átti einn rosalegasta leik sem ég hef séð. Ég held hann hafi varið 32 bolta. Í fyrri hálfleik voru þeirra áhorfendur fyrir aftan hann. Þeir hræktu á skallann á honum og köstuðu klinki í hann,“ sagði Vignir. „Hann „tjúnaðist“ upp úr öllu valdi við það og lokaði gjörsamlega rammanum,“ bætti Vignir við. Haukar og Sporting gerðu 21-21 jafntefli í fyrri leiknum í Lissabon en Haukar unnu svo seinni leikinn á Ásvöllum, 33-32. Einar Örn Jónsson, núverandi íþróttafréttamaður, skoraði sigurmark Hauka á lokaandartökum leiksins. Haukar féllu svo út fyrir sterku liði Metkovic frá Króatíu í undanúrslitunum, 51-45 samanlagt. Ef Haukar hefðu unnið hefðu þeir mætt Alfreð Gíslasyni, Ólafi Stefánssyni og félögum í Magdeburg í úrslitaeinvíginu. Klippa: Seinni bylgjan - Leikurinn í Lissabon
Vignir Svavarsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson voru gestir Henrys Birgis Gunnarssonar í Seinni bylgjunni í gær þar sem þeir fóru yfir upphafið að gullöld Hauka. Þeir rifjuðu m.a. upp frægan leik Hauka við Sporting í Lissabon í EHF-bikarnum tímabilið 2000-01. Þar fór markvörðurinn og flugmaðurinn Bjarni Frostason á kostum. „Bjarni Frosta átti einn rosalegasta leik sem ég hef séð. Ég held hann hafi varið 32 bolta. Í fyrri hálfleik voru þeirra áhorfendur fyrir aftan hann. Þeir hræktu á skallann á honum og köstuðu klinki í hann,“ sagði Vignir. „Hann „tjúnaðist“ upp úr öllu valdi við það og lokaði gjörsamlega rammanum,“ bætti Vignir við. Haukar og Sporting gerðu 21-21 jafntefli í fyrri leiknum í Lissabon en Haukar unnu svo seinni leikinn á Ásvöllum, 33-32. Einar Örn Jónsson, núverandi íþróttafréttamaður, skoraði sigurmark Hauka á lokaandartökum leiksins. Haukar féllu svo út fyrir sterku liði Metkovic frá Króatíu í undanúrslitunum, 51-45 samanlagt. Ef Haukar hefðu unnið hefðu þeir mætt Alfreð Gíslasyni, Ólafi Stefánssyni og félögum í Magdeburg í úrslitaeinvíginu. Klippa: Seinni bylgjan - Leikurinn í Lissabon Seinni bylgjan er uppgjörsþáttur Stöðvar 2 Sports um Olísdeildir karla og kvenna í handbolta og er á dagskrá öll mánudagskvöld. Upptökur af þættinum má nálgast á sjónvarpsvef Stöðvar 2. Stöð 2 Sport er hluti af Sportpakkanum.
Seinni bylgjan er uppgjörsþáttur Stöðvar 2 Sports um Olísdeildir karla og kvenna í handbolta og er á dagskrá öll mánudagskvöld. Upptökur af þættinum má nálgast á sjónvarpsvef Stöðvar 2. Stöð 2 Sport er hluti af Sportpakkanum.
Íslenski handboltinn Haukar Seinni bylgjan Mest lesið Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Íslenski boltinn Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ Handbolti Sungu jólalag hástöfum og allt klárt fyrir HM-einvígin Fótbolti „Mættum til leiks í seinni hálfleik“ Sport Gáfu ekki upp hundraða milljóna greiðslu til Infantino Fótbolti FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Handbolti Aftur ráðast HM-örlög Íslands gegn Portúgölum Fótbolti Norsku meistararnir magnaðir gegn Bayern Fótbolti Fleiri fréttir Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum Sjá meira