Klopp vill einkafund með Werner til að kynnast honum betur Anton Ingi Leifsson skrifar 15. apríl 2020 10:00 Timo Werner er ansi ofalega á óskalista samlanda síns, Jurgen Klopp. vísir/epa
Þýska dagblaðið Bild greinir frá því í dag að Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, vilji hitta Timo Werner á næstunni til þess að kynnast honum betur og sannfæra hann um að koma til Bítlaborgarinnar þegar hann tekur sitt næsta skref. Klopp hefur lengi verið talinn mikill aðdáandi Werner sem leikur nú með RB Leipzig í Þýskalandi en líklegt er að hann vilji taka næsta skref á sínum ferli. Kórónuveiran gæti komið í veg fyrir það í sumar en þá myndi hann líklega fara frá Þýskalandi í janúar á næsta ári - eða sumarið þar á eftir. Klopp horfir til þess þýska sem ódýrari leikmann samanborið við þá Jadon Sancho og Kylian Mbappe sem hafa einnig verið orðaðir við Liverpool en Bild greinir frá því að Klopp vilji hitta Werner og ræða betur við hann undir fjögur augu. Update @LFC & @TimoWerner: Jürgen Klopp wants to meet Werner to convince him. But: because of Corona the meeting is delayed @SPORTBILD @altobelli13— Christian Falk (@cfbayern) April 15, 2020 Sömu sögusagnir segja að þessi fundur hefði líklega verið búinn að eiga sér stað ef ekki hefði verið fyrir kórónuveiruna. Liverpool er ekki eitt um Werner því þýsku risarnir í Bayern Munchen eru einnig taldir áhugasamir. Þeir hafa þó ekki, líkt og Liverpool, opinberað áhuga sinn á Werner. Werner var spurður út í Liverpool eftir sigur Leipzig á Tottenham í Meistaradeildinni fyrr í vetur og þar talaði hann ansi vel um félagið sem og stjórann Klopp.
Enski boltinn Þýski boltinn Mest lesið Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Íslenski boltinn Heimsleikarnir í beinni: Fyrstu skref Bergrósar á stærsta sviðinu Sport Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fótbolti Ítalir gera allt sem þeir geta fyrir Guardiola Fótbolti Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Enski boltinn „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Handbolti Fleiri fréttir Víkingarnir halda toppsætinu Segir Paredes ekki eiga að fá bann þrátt fyrir að hafa ráðist á sig Casemiro orðinn leikmaður Inter Miami Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki „Okkur vantar klárlega kantmann“ Ítalir gera allt sem þeir geta fyrir Guardiola Hansen sá hamingjusamasti í Víkinni „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Eyjakonur þétta vörnina Vandræðalega slakar Valskonur: „Til skammar“ Allir íslensku Evrópuleikirnir á Sýn Sport Sjáðu tvennu Hansen og markið sem var tekið af Vinnandi Víkingar og veikar Valskonur Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Rogers og Palmer sameinaðir hjá Chelsea Anderson sendir Nottingham Forest kveðju Liðalaus Stones eftirsóttur Óskar Smári Haraldsson: „Margt í okkar leik sem var ekki í lagi“ „Bið strákana um að vera djarfir með boltann og sækja“ Skoraði tvennu þrátt fyrir fjólubláan fót: „Hefðum kannski átt að refsa þeim meira“ „Tek fyrri hálfleikinn á mig“ Guðni Eiríksson: „Við erum að njóta“ „Búinn að bíða eftir svona leik“ Uppgjörið: Víkingur - Beer Sheva 2-1 | Nikolaj gerði aftur útslagið Uppgjörið: Valur – Breiðablik 1-7 | Hrafnhildur Ása og Agla María tættu vörn Vals í sig Sjá meira