Innlent

Hugrún fræðir ungmenni um geðheilbrigði á nýrri síðu

Sylvía Hall skrifar
Mikilvægt er að huga að geðheilsunni, þá sérstaklega núna þegar aðstæður í samfélaginu eru kvíðavaldandi fyrir marga.
Mikilvægt er að huga að geðheilsunni, þá sérstaklega núna þegar aðstæður í samfélaginu eru kvíðavaldandi fyrir marga. Hugrún/Alda Lilja

Hugrún geðfræðslufélag hefur sett í loftið vefsíðuna gedfraedsla.is þar sem nálgast má upplýsingar um geðheilsu, geðraskanir og úrræði. Að baki félaginu stendur hópur háskólanema í sjálfboðaliðastarfi og snýr starfsemin að því að bæta geðheilsu ungmenna á Íslandi og auka aðgengi að upplýsingum.

Að sögn félagsins er sérstaklega brýnt að huga að geðheilsunni nú þegar heimsfaraldur gengur yfir og þekkja einkenni geðraskana. Þá sé einnig mikilvægt að vita hvert á að leita ef eitthvað kemur upp.

Á síðunni má finna upplýsingar á mannamáli og er einnig boðið upp á upplýsingar á ensku og pólsku. Í tilkynningu frá félaginu kemur fram að þrátt fyrir mikinn fjölda aðfluttra Íslendinga sé oft erfitt að nálgast áreiðanlegar upplýsingar um geðheilsu og úrræði á öðrum tungumálum en íslensku.

Biðla til foreldra að ræða geðheilsu við börn

Þá er hluti síðunnar tileinkaður foreldrum, forsjáraðilum og skólastarfsmönnum og má þar finna leiðbeiningar til að opna á umræðu við ungmenni. Slíkt fræðsla gagnist bæði ungmennum og samfélaginu öllu með því að auka vitneskju, draga úr fordómum, draga úr alvarleika vandans og auðveldað ungu fólki að leita til einhvers sem þau treysta.

Félagið hefur birt ákall ásamt Landssamtökum íslenskra stúdenta og Sambandi íslenskra framhaldsskólanema þar sem biðlað er til foreldra að nota leiðbeiningarnar á síðunni. Það sé mikilvægt að ræða geðheilsu við ungmenni, kynna fyrir þeim einkenni geðraskana og þau úrræði sem standa til boða.

Þetta er gert þar sem geðfræðsla er ekki fastur liður í skólastarfi á neinu skólastigi á Íslandi að sögn félaganna. Því vilji þau biðla til foreldra að sinna geðfræðslu svo ungmenni fái þá nauðsynlegu fræðslu.

„Samtal um þessi mál heima fyrir er líka mikilvægt því það opnar á nauðsynlega umræðu og eykur líkur á því að ungmenni treysti sér til að ræða vandamál sem geta komið upp.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×