Eitruð karlmennska Arnar Sverrisson skrifar 30. desember 2019 09:00 Karlar hafa löngum þótt eitraðir, óduglegir og jafnvel réttdræpir, sökum ofbeldis og kúgunar gagnvart konum sínum. Þær voru greinilega haldnir eitraðri karlmennsku eins og ég og kynbræður mínir í dag, því þessi bölvaldur er okkur í blóð borinn, hefur síast inn í merg og bein. Eitruð karlmennska er einnig kölluð sjúkleg karlmennska (uppáhaldshugtak Stígmóta) eða skaðleg karlmennska eða skerðingarsjúkdómur eða barasta karlsýki. Sannast sem oft áður, að kært barn hefur mörg nöfn (e. toxic masculinity, mascupathy). Höfundar einnar þeirra mýmörgu skýrslna stjórnvalda um þann vanda, sem hlýst af meinsemdinni í sálu karla, segja greiningu „sérlega mikilvæg[a] í umræðu um það sem kallað er „skaðleg karlmennska“, tegundir karlmennsku sem hindra jafnrétti og félagslegt réttlæti.“ Fyrrnefnd Alexe var hrifin af fyrstu bylgju kvenfrelsunar eins og ofbeldisseggir meðal kvenfrelsunarsystranna í Norður-Ameríku og Englandi. Ofbeldisarfur þeirra lifir enn góðu lífi meðal kvenfrelsara, m.a. í hugtakinu, eitraðri karlmennsku. Sjúklinga, höldnum jafn ógnvænlegum sjúkdómi, ber að lækna, kvengera og/eða fækka verulega, segja þeir. Norður-ameríski kennarinn og rithöfundurinn, Sally Miller Gearhart (f. 1931) hefur mælt út hæfilegan fjölda karla. „Hlutfall karla verður að skera niður í og viðhalda í u.þ.b. tíunda hluta mannkyns.“ Norður-ameríska kvenfrelsaranum, Valerie Jean Solanas (1936-1988), þótti það greinilega ofrausn að láta tíunda hluta karla lifa. „Konan mun, hvort sem henni líkar betur eða verr, taka öll völd í fyllingu tímas, jafnvel þótt væri bara af þeirri einu ástæðu, að hún neyðist til þess – þegar öllu er á botninn hvolft hverfur karlinn af sjónarsviðinu.“ En skylda konunnar til að eyða körlum gersamlega er ef til vill skiljanlegri í ljósi þess, að karlinn er bágstödd vera, ef veru skyldi kalla, því „[k]arlinn er þróunarslys ... ófullkomin kona, fóstureyðing í lifanda lífi, ónýtur á erfðavísisstigi.“ ... „Karlinn er skertur, býr við tilfinningalega takmörkun. Karlmennska er skerðingarsjúkdómur og karlar eru tilfinningalegir krypplingar. Karlinn er að öllu leyti sjálfhverfur, gildra sjálfum sér, ófær um samúð og samkennd, ást, vináttu og blíðu. Hann er utangarðseining, ófær um að stofna til sambands við annað fólk. Viðbrögð hans eru einvörðungu eðlislæg, firrt vitundarstjórn; greindin er tæki, sem stjórnað er af hvötum og þörfum hans; ástríða er honum fjarri sem og andleg samskipti; hann skynjar ekkert annað, heldur en innri hræringar. Hann er hálfdauður, fáskiptið dauðyfli, ófær um að veita og þiggja unað eða hamingju; ...“ Karlinn er „ ... uppnagaður af sektarkennd, ótta og óöryggi; tilfinningum, sem eiga rætur í karleðlinu...“ Hugmyndafræðisystur Valerie taka undir. Andrea Dworkin (1946-2005) leggur að konum að ryðja óheppilegum körlum úr vegi. Það drýpur blóð úr draumum hennar: „Mig dreymir um að sjá karl svo lúbarinn, að hann liggi í blóðbaði með skóhæl á kafi í munni sér sem væri epli í gini svíns.“ Mary Daly (1928-2010) leggur eitraða karlmennsku nokkurn veginn að jöfnu eitraðri jörð: „Afeitrun jarðarinnar verður að eiga sér stað, eigi líf að þrífast til framtíðar. Ég hygg, að hún verði samhliða þróun, sem hafi í för með sér verulega fækkun karlmanna.“ Aurelia Vera er kennari á Kanaríeyjum. Hún kom auga á gagnlegan mótleik við áhrifum sjúkrar karlmennsku. Boðskapur hennar í kynfræðitíma með unglingsnemendum var á þessa leið: (Hún beindi orðum sínum til karlkynsnemenda.) Væri þú tilkippilegur til geldingar í því skyni að tryggja konum völd? Hún svarar neitandi fyrir viðmælanda sinn og segir því næst: „Við þurfum að láta okkur lynda (dabble) úrval [drengja] til geldingar. Ef þú vanaðir son þinn, væri hann ekki fær um að eignast börn. [Aukin heldur] væri honum hlíft við fjölda kynvakastýrðra breytinga, sem hafa í för með sér [aukna] líkamsburði. Þrótturinn kemur úr kynkirtlunum. Svo verða raddir þeirra áfram barnslegar.“ Egypsk/norður-ameríski rithöfundurinn, Mona Eltahawy fær orðið: „Ég bið fólk að hugleiða ... sviðsmynd, þar sem við [konur] myrðum ákveðinn fjölda karlmanna í viku hverri. Hversu mörgum þyrftum við að farga, þar til feðraveldið sest niður handan borðsins og segir: „Gott og vel, látum gott heita. Hvað er í okkar valdi til að stansa aflífunina?““ En það eru miskunnsamari kvenfrelsarar á kreiki einnig. Þeir vilja lækna oss. T.d. Heilsuverndar- og meðferðarstofnun karlsýkinnar í Bandaríkjum Norður-Ameríku, sem helgar sig afhjúpun og lækningu sjúkrar (norður-) amerískrar karlmennsku. Þar fræðumst við um, að plágu þessa sé að finna í öllum húsakynnum, að það festi meira að segja ekki auga á henni, því hún sé svo algeng. Karlsýkin er talin sú skeinuhættasta af sínu tagi fyrir velgengni í samböndum og samfélagi, gjöreyði jafnaðarlegu og heilbrigðu mannlífi. Í gögnum kvenfrelsunarlækningastofnunarinnar í San Francisco má lesa: „[K]venfrelsunarsállæknirinn leitar margvíslegra leiða til að knýja fram breytingar, þ.á.m. baráttu í samtökum atvinnumanna, málafylgju með tilliti til lagabreytinga og viðeigandi aðgerðir af öðrum toga.“ (Sally Satel) Ofangreindar stofnanir eiga sér systurstofnun á Íslandi, Stígamót. En þó kynni víðar að vera veiðivon í þessu tilliti, hafi hvatning og spádómur móður kvenfrelsunarsállækninga, Phyllis Chesler (f. 1940), gengið nægjanlega eftir. „Það er ljóst, að kvenkyns kvenfrelsarar verða hægt og bítandi að ná undirtökunum í opinberum stofnunum og félögum (social institutions) og drottna yfir þeim - .... [Þ]að vinnur einfaldlega gegn hagsmunum kvenna að styðja feðraveldið eða jafnvel hið upplogna „jafnrétti“ við karla.“ Hún ítrekar: „[Í] mínum huga er enginn leið önnur fær til að sigrast á feðraveldinu eða velta því úr sessi, en að hrifsa völdin.“ Í draumi Phyllis verður hið goðsagnakennda kvennasamfélag (Amasónurnar) endurreist, þar sem „... allar konur virtust geta stefnt að og öðlast fullkominn mannleika:“ Öðru máli gegnir um karla: „[E]invörðungu karlar, væri þeim á annað borð leyft að tóra, voru valdalausir og kúgaðir á fjölmörgum sviðum.“ (Phyllis Chester) Boðskapur Phyllis verður skiljanlegri, þegar grundvallarkennisetning hennar um tilurð fjölskyldunnar er skoðuð: „Það er trúa mín, að frumorsök að stofnun feðraveldisfjölskyldunnar hafi verið þungun í kjölfar nauðgunar. Það er mikilvæg staðreynd þróunarinnar (biological fact). Sömuleiðis var þörf karlsins fyrir að sanna erfðalegan ódauðleika sinn svo sterk, að hann taldi sig eiga rétt á að leggja undir sig konukroppinn til að tryggja það, að afkvæmi hans kviknuðu af eigin sæði.“ (Phyllis Chester) Kvensálfræðingar hafa svarað kalli fræðamóður sinnar og vilja líka leggja hönd á plóg, enda líf kvenkynsins að veði. Norður-ameríski sálfræðingurinn, Ellen Hendriksen, lýsir sjúkri karlmennsku: „Lögmál hinnar sjúku karlmennsku býður, að karlar ríki yfir hverjum og einum, gangist ekki við þörfum [sínum], sýni ekki tilfinningar og beri stöðugt sigur af hólmi. Þetta er óheillavænlegt (impossible) fyrirkomulag, sem kæfir og meiðir alla [sem það snertir]. Sjúkri karlmennsku má vel líkja við bauk. Hann býður upp á ósveigjanleg þrengsli, sem afskræmir karla. Þeim er nauðugur einn kostur að troða sér í hann. [Þar] lifa þeir í þjáningarþögn, gangast ekki við þörfum sínum, sýna ýgi eða mannalæti, reiða sig ekki á nokkurn mann, sýna engin veikleikamerki og láta ekkert í ljósi (snitch). ... Jafnvel ánægju í smáum sniðum truflar hin sjúka karlmennska. ... [Hinn sjúki baukmaður] “getur engan veginn gengist við því, að hvítvoðungur sé krúttlegur, ekki fær hann sig til að faðma hvolp, biðja um smáköku, panta bjúgaldinpönnuköku eða nota regnhlíf, þegar rignir. ... [Þ]að er bein afleiðing sjúkrar karlmennsku, þegar [karlar] beita valdi til að skapa virðingu .. (sem í raun er ótti). Karlar bæta sér upp virðingarleysi með drottnun. En í daglegu lífi eru margir, einstakir karlmenn, sem ekki gangast við völdum sínum og forréttindum.“ Starfssystir og landi Ellenar er hinn kunni sálfræðingur, Laura Brown. Hún hefur m.a. skrifað bókina, „Kvenfrelsunarlækning.“ Hún segir um lækninguna: „Samkvæmt minni skilgreiningu er kvenfrelsunarlækning framin með tilliti til stjórnmálaspeki kvenfrelsunar, ásamt greiningum, sem grundvallaðar eru á fjölmenningarlegri kvenfrelsunarfræðimennsku, er lýtur að konum, körlum og kynferði. [Hvort tveggja] bendir sállækni og skjólstæðingi á leið til lausna og aðferða til að efla kvenfrelsunarandspyrnu, umsköpun og breytingar í daglegu einkalífi, tilfinningalífi, samböndum og stjórnmálum.“ Hún skrifar ennfremur: Kvenfrelsunarlækning „veitir veitir sjúklingum innsæi í tengsl eigin hátternis og feðraveldisins, sem setur mark sitt á okkur öll.“ ... „Róttæk, félagsleg breyting skal vera ásetningur kvenfrelsunarlækningar til að uppræta félagslegt fyrirkomulag, þar sem kúgandi valdaójafnvægi þrífst.“ Hún ítrekar: Kvenfrelsunarlækning „veitir veitir sjúklingum innsæi í tengsl eigin hátternis og feðraveldisins, sem setur mark sitt á okkur öll.“ ... „Róttæk, félagsleg breyting skal vera ásetningur kvenfrelsunarlækningar til að uppræta félagslegt fyrirkomulag, þar sem kúgandi valdaójafnvægi þrífst.“ Laura endurómar einnig skilning ofangreindrar fræðamóður á nauðsyn kvenfrelsunarlækningar. Hún „endurspeglar málflutning hreyfingarinnar. Sállæknar, fyrst og fremst konur, voru hvatamenn hennar. Þær umbreyttu andófi sínu gegn kynfólum í heilbrigðisstéttum í mótun tækilegs (viable) valkosts fyrir konur í þörf fyrir sállækningu. [Þannig var] skjólstæðingum hlíft við kynfólsku, kvenfæð og staðalímyndum, sem fram að því höfðu verið allsráðandi. ... [Lækningin] er öndverð við hinn ríkjandi skilning í drottnandi feðraveldi.“ Það verður seint ofsögum sagt af því, hvernig eitruð karlmennska leikur konur. Hér segir menntuð, ensk móðir frá raunum sínum í enska dagblaðinu, Dagspóstinum (Daily Mail): „Eiginkarlinn yfirgaf mig fyrir nokkrum árum síðan. Ég tætti bækur hans í sundur, rispaði bílinn, skar sundur fötin og eyðilagði geislaplöturnar. Og ég sé ekkert athugavert við það. Enn er eitt og annað, sem gerir mig ólma. Hin ýmsu hlutverk eins og móðir (ég gifti mig aftur), ástkona, vinur og starfsmaður, vaxa mér yfir höfuð – og mér finnst ég ekki ráða við neitt þeirra.Um daginn beið ég í röð við hraðbanka. Konan í röðinni fyrir framan mig kannaði stöðu á þrem greiðslukortum. Og tók í engu tillit til þeirra, sem biðu. Ég var á hraðferð. Svei mér þá! Mig langaði að kyrkja hana – en auðvitað lét ég hjá líða. Þess í stað fór ég á hnefaleikaæfingu um kvöldið og fékk hamslausa útrás í æfingunum. Það er goðsögn, að konur séu hið blíða kyn. Í raun búum við ekki síður yfir bræði og ýgi, heldur en karlar.“ Það er morgunljóst, að feðraveldið fer illa með konur – sumar hverjar að minnsta kost. (Þessi ætti hugsanlega að leita sér kvenfrelsunarsállækninga.) En það er svipað farið með konur og karla. Þær eru ekki einsleitur hópur eins og t.d. Kolbrún Bergþórsdóttir, blaðamaður og rithöfundur, hefur bent á. Hugsanlega hefði rithöfundurinn, Penny Vincenszi (1939-2018), snuprað kynsystur sína. Hún segir. „Það var á „brjóstahaldabrennuskeiði“ kvenfrelsunar, að ein þeirra [kvenfrelsaranna] sagði við mig [þriggja barna móðir í fullu fjöri á framabraut]: „Konur eru hræðilegir nöldrarar. Þær stynja yfir löngun sinni til að giftast; þær kveina vegna þess, að þær langar til að eignast barn; því næst kveina þær, því það sé svo leiðinlegt heima, langar aftur í vinnuna; síðan vola þær yfir því að skilja barnið eftir heima, fá sektarkennd.“ ... „Frelsun frá fjötrunum, sem við hristum af okkur í kvenfrelsunarbyltingunni, hefur einungis fært okkur vanlíðan í öllu því, sem við tökum okkur fyrir hendur.“ Því mætti við bæta, að mæður og ömmur virðast láta undir höfuð leggjast að fræða dætur og ömmustelpur um kvenfrelsunarávinningana. Það er raunalegt að verða vitni að endurtekinni geirvörtu- og „druslufrelsun.“ Sú frelsun átti sér stað á Vesturlöndum fyrir rúmri hálfri öld síðan. Góðu kynbræður! Það er bágt að lifa í bauki, eitraður að auki. Ég hvet ykkur til að fylgja fordæmi mínu og Samfylkingarmannsins, Ágústs Ólafs Ágústssonar, kyndjarfs kvenkúgara (þótt hvítur riddari sé) samkvæmt flokksdómi, og leita aðhlynningar hjá Stígamótum, sem Góði hirðirinn skilgreinir sem velgjörðasamtök. Og enn gæti bætt úr skák, að gerast félagar í Vinstri-grænum. Þar eru í boði hugvekjur um eitraða karlmennsku. T.d. flutti einn hugmyndafræðinga þeirra, Þorsteinn V. Einarsson, sem er „femínisti með brennandi réttlætiskennd,“ vitundarvakningu í boði jafnréttisnefndar Rangárþings eystra nýverið. Í tilkynningu hennar stendur: „Afleiðingar [karlmennskunnar] eru vanlíðan, óhamingja, kynbundið námsval, starfsval, launamunur, ofbeldi og ójafnrétti sem bitnar á samfélaginu öllu, körlum og konum. Lausnin er meðal annars að hrista upp í og víkka út viðteknar karlmennskuhugmyndir. Þannig losna karlmenn, konur og samfélagið allt úr álögum karlmennskunnar.“ Að síðustu óska ég lesendum ástar, sáttar og samlyndis á nýju ári.Höfundur er ellilífeyrisþegi. Þýðingar eru hans. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Arnar Sverrisson Mest lesið Sleppum Borgarlínu - Frítt í strætó – Spörum milljarða Sigfús Aðalsteinsson,Hlynur Áskelsson,Baldur Borgþórsson Skoðun Þegar miðstýring er kölluð hagræðing Liv Ása Skarstad Skoðun Félagshagfræðileg greining Sundabrautar er byggð á sandi Hans Guttormur Þormar Skoðun Fjölskyldueinelti, skömmin og Beckham-fjölskyldan Sigríður Svanborgardóttir Skoðun Hvað ertu að gera við sparnaðinn? Jóhann Óskar Jóhannsson Skoðun Innanbúðarátök á stjórnarheimilinu Sigurður Páll Jónsson Skoðun Ung hjón á Íslandi eru að kafna – kerfið er að drepa framtíð þeirra Sigurður Sigurðsson Skoðun Ef þetta er ekki þrælahald – hvað er það þá? Ágústa Árnadóttir Skoðun Sameining sýslumanna samþykkt – stofnunum fækkað um 5% Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir Skoðun Opið bréf til kjörinna fulltrúa: Íslensk náttúra, villtir laxastofnar og sameiginlegar auðlindir þjóðarinnar eru ekki tilraunaverkefni Agnar Már Másson Skoðun Skoðun Skoðun Þegar miðstýring er kölluð hagræðing Liv Ása Skarstad skrifar Skoðun Sleppum Borgarlínu - Frítt í strætó – Spörum milljarða Sigfús Aðalsteinsson,Hlynur Áskelsson,Baldur Borgþórsson skrifar Skoðun Félagshagfræðileg greining Sundabrautar er byggð á sandi Hans Guttormur Þormar skrifar Skoðun Opið bréf til kjörinna fulltrúa: Íslensk náttúra, villtir laxastofnar og sameiginlegar auðlindir þjóðarinnar eru ekki tilraunaverkefni Agnar Már Másson skrifar Skoðun Innanbúðarátök á stjórnarheimilinu Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Sameining sýslumanna samþykkt – stofnunum fækkað um 5% Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Við látum stjórnast af sértrú í peningamálum Örn Karlsson skrifar Skoðun „Groundhog Day“ í boði réttarkerfisins Davíð Bergmann skrifar Skoðun Skattar hér, skattar þar, skattar alls staðar Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Flækjur í fjölskyldum Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Frístundastarf mikilvæg stoð í menntakerfi Reykjavíkurborgar Steinn Jóhannsso,Soffía Pálsdóttir skrifar Skoðun Skerjafjarðargöng – spörum tíma í umferðinni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað ertu að gera við sparnaðinn? Jóhann Óskar Jóhannsson skrifar Skoðun Valdboð í stað samtals – hættulegur tíðarandi Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Tvær milljónir barna deyja í þögn Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Stóra sleggjan Gunnar Einarsson skrifar Skoðun Daði Már og mannauðsmálin Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Orðaleppar og annað óþolandi Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Eru tæknilegar forsendur orkuskipta til staðar? Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Mýrar skipta máli - Alþjóðlegur dagur votlendis Álfur Birkir Bjarnason skrifar Skoðun Varnarstefna uppgjafar – hvað ef íslenska handboltalandsliðið hugsaði svona Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Myndir þú vilja losna við áhyggjur? Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar Skoðun Börn í brennidepli – samfélagsleg ábyrgð okkar allra Hákon Skúlason,Jóhanna Pálsdóttir skrifar Skoðun Getur hver sem er boðið sig fram til sveitarstjórna? Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar Skoðun Sleggjunni beitt – gegn almenningi Þorsteinn Sæmundsson skrifar Skoðun Borgarlínan verður kosningamálið í vor Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Framboð sem byggir á trú á Akureyri Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Fjölskyldueinelti, skömmin og Beckham-fjölskyldan Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Ung hjón á Íslandi eru að kafna – kerfið er að drepa framtíð þeirra Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Sterk heilsugæsla um allt land Alma D. Möller,Jón Magnús Kristinsson skrifar Sjá meira
Sleppum Borgarlínu - Frítt í strætó – Spörum milljarða Sigfús Aðalsteinsson,Hlynur Áskelsson,Baldur Borgþórsson Skoðun
Opið bréf til kjörinna fulltrúa: Íslensk náttúra, villtir laxastofnar og sameiginlegar auðlindir þjóðarinnar eru ekki tilraunaverkefni Agnar Már Másson Skoðun
Skoðun Sleppum Borgarlínu - Frítt í strætó – Spörum milljarða Sigfús Aðalsteinsson,Hlynur Áskelsson,Baldur Borgþórsson skrifar
Skoðun Opið bréf til kjörinna fulltrúa: Íslensk náttúra, villtir laxastofnar og sameiginlegar auðlindir þjóðarinnar eru ekki tilraunaverkefni Agnar Már Másson skrifar
Skoðun Sameining sýslumanna samþykkt – stofnunum fækkað um 5% Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar
Skoðun Frístundastarf mikilvæg stoð í menntakerfi Reykjavíkurborgar Steinn Jóhannsso,Soffía Pálsdóttir skrifar
Skoðun Varnarstefna uppgjafar – hvað ef íslenska handboltalandsliðið hugsaði svona Arnór Sigurjónsson skrifar
Skoðun Börn í brennidepli – samfélagsleg ábyrgð okkar allra Hákon Skúlason,Jóhanna Pálsdóttir skrifar
Skoðun Ung hjón á Íslandi eru að kafna – kerfið er að drepa framtíð þeirra Sigurður Sigurðsson skrifar
Sleppum Borgarlínu - Frítt í strætó – Spörum milljarða Sigfús Aðalsteinsson,Hlynur Áskelsson,Baldur Borgþórsson Skoðun
Opið bréf til kjörinna fulltrúa: Íslensk náttúra, villtir laxastofnar og sameiginlegar auðlindir þjóðarinnar eru ekki tilraunaverkefni Agnar Már Másson Skoðun