Stuart Dallas kom í veg fyrir að Leeds United tapaði öðrum leiknum í röð þegar hann jafnaði gegn Preston þegar mínúta var til leiksloka. Lokatölur 1-1.
Leeds hefur aðeins fengið tvö stig í síðustu þremur leikjum sínum.
Strákarnir hans Marcelos Bielsa eru í 2. sæti ensku B-deildarinnar með 48 stig, þremur stigum á eftir toppliði West Brom.
Alan Browne kom Preston yfir á 22. mínútu og það mark virtist ætla að duga gestunum til sigurs. En Dallas var á öðru máli og jafnaði á 89. mínútu.
Preston er í 6. sæti deildarinnar með 39 stig.
